Ert þú með hús, íbúð eða annað viðeigandi húsnæði sem þú getir boðið flóttafólki sem er að flýja ástandið í Úkraínu? Fjölmenningarsetrið hefur fengið það verkefni að undirbúa móttöku flóttafólks frá Úkraínu sem felst meðal annars í því að taka á móti skráningum um mögulegt leiguhúsnæði fyrir einstaklinga.
Borgarbyggð hvetur alla sem vilja bjóða fram húsnæði til leigu að skrá sig á þar til gerðu eyðublaði hér.
Nánari upplýsingar veitir Fjölmenningarsetrið í síma 450-3090 eða netfangið mcc@mcc.is.
Borgarbyggð vill þakka þeim asem hafa nú þegar boðið fram húsnæði í þessum tilgangi og bendum við viðkomandi aðilum á að fylla út eyðublaðið hér að ofan. Sveitarfélagið er í samskiptum við Fjölmenningarsetrið og stjórnvöld um aðkomu sveitarfélagsins við móttöku flóttafólks, sem mun vonandi skýrast á næstu dögum.