Frístund í Borgarnesi – starfsfólk vantar

desember 12, 2018
Featured image for “Frístund í Borgarnesi – starfsfólk vantar”

Frístund í Borgarnesi

Óskað er eftir frístundaleiðbeinendum í frístund í Borgarnesi

Markhópur frístundar eru börn á aldrinum 6-9 ára.

Í boði er hlutastarf þar sem vinnutíminn er frá kl. 13:00-16:00 tvo til fimm virka daga vikunnar.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

Leiðbeina börnum í leik og starfi.

Skipulagning á faglegu frístundarstarfi

Samvinna við börn og starfsfólk

Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundar í Borgarnesi.

Hæfniskröfur

Áhugi á að vinna með börnum

Frumkvæði, gleði og sjálfstæði.

Færni í mannlegum samskiptum.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.

Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknafrestur er til 3.janúar.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigga Dóra, tómstundafulltrúi á netfanginu siggadora@umsb.is

 


Share: