Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni í Borgarbyggð 2019

janúar 4, 2019
Featured image for “Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni í Borgarbyggð 2019”

Borgarbyggð styrkir frístundaiðkun barna og ungmenna á aldrinum 6-18 ára með framlagi að upphæð kr. 20.000 á ári. Markmið framlagsins er að hvetja börn og ungmenni til að taka þátt í frístundastarfi í Borgarbyggð.

Hægt er að nýta frístundastyrk í:

  • skipulagt frístundastarf í Borgarbyggð sem stundað er undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda samfellt í amk. 10 vikur. Þetta á t.d. við um allt íþróttastarf sem stundað er á vegum viðurkenndra íþróttafélaga, dans í dansskólum, skátastarf og annað reglubundið frístundastarf,
  • íþrótta- og tómstundanámskeið barna í 1. og 2. bekk sem skráð eru í íþrótta- og tómstundaskólann,
  • þreksal, árskort/sundkort fyrir ungmenni á aldrinum 13 – 16 ára undir eftirliti íþróttafræðings samfellt í amk. 10 vikur,
  • þreksal, árskort/sundkort fyrir ungmenni eldri en 16 ára, 
  • Nám í tónlistarskóla sem er samfellt í 10 vikur.

Hægt er að nýta frístundastyrkinn hjá félögum innan Borgarbyggðar sem og í öðrum sveitarfélögum. Umsóknir eru afgreiddar rafrænt í gegnum íbúagátt Borgarbyggðar á heimasíðunni borgarbyggd.is og í skráningarkerfinu Nóra vegna starfs hjá félögum UMSB á heimasíðunni umsb.is

Forráðamenn skrá sig inn á íbúagátt Borgarbyggðar, annað hvort með rafrænum skilríkum eða Íslykli. Undir „Frístundastarf“ koma fram upplýsingar um námskeið. Hakað er við „Nota Frístundastyrk Borgarbyggðar“ og þá lækkar upphæð gjalda um þá upphæð sem nemur inneign frístundastyrks.

Frístundastyrkur vegna vorannar er kr. 10.000 og vegna haustannar kr. 10.000, ef styrkur er ekki nýttur á vorönn er möguleiki að nýta kr. 20.000 á haustönn. Inneign fellur niður um áramót.


Share: