Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni

október 22, 2018
Featured image for “Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni”

Öll börn og ungmenni á aldrinum 6-18 ára fá styrk til frístundaiðkunar. Framlagið er kr. 20.000 á ári og er markmið þess að hvetja börn og ungmenni til að taka þátt í frístundastarfi í Borgarbyggð.
Hægt er að nýta frístundastyrk í:

  • Skipulagt frístundastarf í Borgarbyggð sem stundað er undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda samfellt í amk. 10 vikur. Þetta á t.d. við um allt íþróttastarf sem stundað er á vegum viðurkenndra íþróttafélaga, dans í dansskólum, skátastarf og annað reglubundið frístundastarf.
  • Íþrótta- og tómstundanámskeið barna í 1. og 2. bekk sem skráð eru í íþrótta- og tómstundaskólann.
  • Árskort/sundkort fyrir ungmenni eldri en 16 ára,
  • Nám í tónlistarskóla sem er samfellt í 10 vikur.

Úthlutun frístundastyrksins fer fram á íbúagátt Borgarbyggðar og í gegnum skráningarkerfið Nóra vegna starfs hjá félögum UMSB.  Bæði er hægt að nýta styrkinn beint hjá félögum innan Borgarbyggðar sem og í öðrum sveitarfélögum.  Þegar frístundastyrkurinn er nýttur í gegnum skráningarkerfi Nóra þarf að haka í kassann “Nota frístundastyrk Borgarbyggðar” og þá lækkar upphæð æfingagjalda um þá upphæð sem nemur inneign frístundastyrks fyrir barnið. Í öllum tilfellum byrjarðu á að skrá þig inn á íbúagátt Borgarbyggðar. Ef þú átt ekki lykilorð skráirðu kennitöluna þína í reitinn Nýskráning og færð lykilorð sent í heimabankann þinn.
Greitt er tvisvar á ári, kr. 10.000 eru greiddar í janúar fyrir vorönn og kr. 10.000 í ágúst fyrir haustönn. Ef styrkurinn hefur ekki verið nýttur á vorönn nýtast kr. 20.000 á haustönninni.


Share: