Frístundaleiðbeinendur óskast í Frístund í Borgarnesi

júlí 31, 2018
Featured image for “Frístundaleiðbeinendur óskast í Frístund í Borgarnesi”

Óskað er eftir frístundaleiðbeinendum í frístund í Borgarnesi. Starfið felst í frístundastarfi með börnum á aldrinum 6-9 ára. Í boði er hlutastarf þar sem vinnutíminn er frá 13:00-16:00 alla virka daga. Einnig vantar leiðbeinanda sem getur unnið á þriðjudögum og fimmtudögum frá 13:00-16:00.

Unnið er samkvæmt gæðaviðmiðum í frístundastarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiðbeina börnum í leik og starfi
  • Skipulag á faglegu frístundarstarfi
  • Samvinna við börn og starfsfólk
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundar í Borgarnesi

Hæfniskröfur

  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Frumkvæði, gleði og sjálfstæði
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar

Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör í eru samkvæmt kjarasamningi Kjalar og Launanefndar sveitafélaga.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf 20. ágúst nk.

Umsóknarfrestur er til 13.ágúst.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir, tómstundafulltrúi, netfang siggadora@umsb.is


Share: