![Featured image for “Fréttir af skólastarfi í Borgarbyggð”](https://dev.borgarbyggd.is/wp-content/uploads/2023/09/13268046_10153785936574094_5432867015742862264_o.jpg)
Út er komið tímaritið Skólaþræðir, en það er tímarit Samtaka áhugafólks um skólaþróun. Samtökin eru umræðu- og samstarfsvettvangur fólks sem hefur áhuga á markvissri þróun skólastarfs, skólaumbótum og rannsóknum.
Í fyrsta tölublaði tímaritsins má finna annars vegar grein um jólaútvarp Grunnskólans í Borgarnesi, Útvarp Óðal fm 101,3 eftir Kristínu M. Valgarðsdóttir deildarstjóra.
Hins vegar má þar finna grein eftir Helgu J. Svavarsdóttir deildarstjóra Hvanneyrardeildar GBF um þrjú áhugaverð verkefni sem unnin eru í skólanum.
Íbúar Borgarbyggðar eru hvattir til að kynna sér efni greinanna sem aðgengilegar eru á http://skolathraedir.is/