Framkvæmdir hefjast á vatnsrennibrautum við sundlaugina í Borgarnesi

maí 12, 2026
Featured image for “Framkvæmdir hefjast á vatnsrennibrautum við sundlaugina í Borgarnesi”

Eftir langa og góða þjónustu er kominn tími til að fjarlægja vatnsrennibrautirnar við Sundlaugina í Borgarnesi, en framkvæmdir hefjast í dag.

Um er að ræða endurnýjun en nýjar og glæsilegar vatnsrennibrautir verða settar upp á næstu vikum. Gert er ráð fyrir að uppsetning nýju rennibrautanna hefjist í byrjun júní og að þær verði teknar formlega í notkun um miðjan júní, ef framkvæmdir ganga samkvæmt áætlun.

Á meðan framkvæmdum stendur getur tímabundið rask orðið á svæðinu við rennibrautirnar og eru gestir beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar á framkvæmdasvæðinu.

Starfsfólk þakkar gestum fyrir sýndan skilning á meðan framkvæmdir standa yfir.


Share: