Frábært æskulýðsball !

nóvember 19, 2004
400 unglingar frá 15 skólum skemmtu sér hið besta á árlegu Forvarnar- og æskulýðsballi Óðals og NFGB sem fram fór á Hótel Borgarnesi s.l. fimmtudagskvöld.
 
Mögnuð skemmtidagskrá var flutt frá nemendafélögum og hljómsveitin Kung-fu hélt uppi dúndrandi stuði á eftir.
Allir unglingarnir og starfsmenn fengu barmmerki með slagorði kvöldsins:
Einelti er ömurlegt – ég tek ekki þátt í því !
Unglingar til hamingju og þakka ykkur fyrir að meta svona vel þessa árlegu uppákomu Óðals og nemendafélags G.B. en ekki kom upp eitt aga eða neyslumál á þessari fjölmennu samkomu.
Þið eruð frábær !
i.jos.
 
 

Share: