Forvarnardagurinn 2019

september 30, 2019
Featured image for “Forvarnardagurinn 2019”

Miðvikudaginn 2. október 2019 verður Forvarnardagurinn haldinn í 14 sinn í grunnskólum landsins og í níunda sinn í framhaldsskólum.

Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands. Aðrir samstarfsaðilar að Forvarnardeginum eru Embætti landlæknis, sem sér um verkefnisstjórn dagsins, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Ungmennafélag Íslands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Skátar, Rannsóknir og greining og SAFF – Samstarf félagasamtaka í forvörnum.

Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti í því sem næst öllum grunnskólum landsins og er beint sérstaklega að nemendum í 9. bekk og á 1. ári í framhaldsskólum. Á Forvarnardeginum ræða nemendur um hugmyndir sínar og tillögur um samverustundir með fjölskyldu og æskulýðs- og íþróttastarf, en þetta eru á meðal verndandi þátta gegn áfengi- og vímuefnum. Einnig gefst nemendum í þessum aldurshópi kostur á að taka þátt í stuttmyndakeppni.

Markmið Forvarnardagsins er að vekja athygli á mikilvægum þáttum í forvarnarstarfi sem snúa að ungu fólki. Forseti Íslands, borgarstjóri, forsvarsmenn fjöldahreyfinganna og aðrir, sem efla vilja forvarnir, munu heimsækja skóla víða um land og ræða við nemendur. Allir sem koma að málefnum barna og ungmenna á einn eða annan hátt eru hvattir til halda forvarnardeginum á lofti og fylgjast vel með starfsemi grunn- og framhaldsskóla þennan dag. Til dæmis með því að heimsækja 9. Bekkinga og/eða 1. árs nemendur í framhaldsskólum. Grunn- og framhaldsskólar eru sérstaklega hvattir til að bjóða fulltrúum nærsamfélagsins í heimsókn til að fylgjast með verkefnum dagsins. Höfum í huga að forvarnir er viðvarandi verkefni sem snýr bæði að almenningi og þeim sem bera ábyrgð á samfélagslegum ákvörðunum og stefnumörkun. Minnumst þess hversu góðum árangri hefur verið náð. Sem dæmi má nefna að fyrir rúmum 20 árum sögðust 42% nemenda í 10. bekk hafa neytt áfengis síðustu 30 daga en árið 2019 var talan komin í 6% og árið 2018 höfðu 46% nemenda í framhaldsskólum aldrei orðið ölvaðir.


Share: