Kynning á viðbragðshópi – Rauði Krossinn í Borgarfirði

september 30, 2019
Featured image for “Kynning á viðbragðshópi – Rauði Krossinn í Borgarfirði”

Rauði Krossinn í Borgarfirði býður til kynningar á viðbragðshópi sem nýverið tók til starfa. Hópnum er ætlað að sinna sálrænni skyndihjálp, viðurkenndu verklagi á vettvangi áfalla með það markmið að styðja einstaklinga til fyrra jafnvægis og sjálfstæðis.

Einnig verður farið stuttlega yfir hvað átt er við með áfalli og hugsanlega afleiðingar áfalla, sögu áfallahjálpar á Íslandi og uppbyggingu sálrænar skyndihjálpar.

Kynningin verður í Hjálmakletti þann 3. október næstkomandi, klukkan 17:00. Áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér þetta mikilvæga samfélaglega verkefni. Viðburðinn má finna á facebook undir – Áfall er ekki sprungið dekk! Hvað er áfall, hvað getum við gert?


Share: