Forsetakosningar í Borgarbyggð

júní 29, 2012
Við forsetakosningar laugardaginn 30. júní 2012 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:
Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (menntaskólanum) í Borgarnesi
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár.
Kjörfundur hefst kl. 9,oo og lýkur kl. 22,oo
Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu
Þar kjósa íbúar í fyrrum Kolbeinsstaðahreppi.
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo
Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár.
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo
Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi
Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð.
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 22,oo
Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási
Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar.
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo
Kleppjárnsreykjakjördeild í íþróttahúsinu að Kleppjárnsreykjum
Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals,
Flókadals og Reykholtsdals.
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 22,oo
Vinsamlega athugið mismunandi tíma á lokun kjörsdeildanna.
Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað.
Á kjördag verður kjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi. Sími hennar er 433-7705.
 
 

Share: