Flokksstjórastörf við vinnuskóla Borgarbyggðar

apríl 19, 2011
Vinnuskóli Borgarbyggðar óskar að ráða flokksstjóra í Borgarnesi fyrir sumarið 2011.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri, hafa gott lag á unglingum og vera þeim góð fyrirmynd í starfi. Í starfinu felst m.a. að leiðbeina nemendum vinnuskólans og kenna þeim öguð og rétt vinnubrögð við fjölbreytt störf. Vinnutímabilið er 6 vikur eða frá 30. maí til og með 8. júlí. Laun eru samkvæmt kjarasamningum launarnefndar sveitafélaga.
Vinnustaðurinn er tóbakslaus.
 
Umsóknareyðublöð fást í Ráðhúsi Borgarbyggðar Borgarbraut 14, Borgarnesi og á skrifstofu sveitarfélagsins að Litla-Hvammi í Reykholti en einnig má nálgast umsóknareyðublöðin á heimasíðu sveitarfélagsins www.borgarbyggd.is

Nánari upplýsingar gefa Sigurþór Kristjánsson verkstjóri vinnuskólans í síma 892-7970 eða á netfangið sissi@borgarbyggd.isog Jökull Helgason forstöðumaður framkvæmdasviðs í síma 433-7100 eða á netfagnið jokull@borgarbyggd.is

Umsóknarfrestur er til föstudagsins 6. maí n.k.
 

Share: