Endurnýjun húsaleigubóta v. 2016

janúar 4, 2016
Húsaleigubætur 2016
 
Endurnýja þarf umsókn um húsaleigubætur um áramót sbr. lög um húsaleigubætur nr. 138/1997.
Því þurfa allir þeir íbúar Borgarbyggðar sem húsaleigubóta njóta að endurnýja umsókn sína um bætur. Rafrænt form umsóknareyðublaðs er að finna á heimasíðu Borgarbyggðar, (www.borgarbyggd.is ) undir umsóknareyðublöð. Umsókn þarf að hafa borist í síðasta lagi 16. janúar til þess að bætur fyrir janúar falli ekki niður.
Til að umsóknarferlið gangi vel og örugglega fyrir sig þá er best að sækja um rafrænt og senda fylgigögn (nýjustu skattskýrslu þeirra sem í íbúðinni búa og afrit síðustu launaseðla ef við á) á netfangið kristjangisla@borgarbyggd.is . Eins er hægt að fylla út umsókn á skrifstofu Borgarbyggðar á eyðublaði sem þar fæst og skila þangað inn gögnum.
 
Félagsmálastjóri
 
 

Share: