
Drög að nýrri íþróttastefnu Borgarbyggðar liggja nú fyrir. Markmiðið með stefnunni er að skapa sameiginlega sýn á þróun íþróttastarfs í sveitarfélaginu og tryggja að hún endurspegli þarfir og væntingar íbúa.
Stefnudrögin eru nú lögð fram til samráðs við íbúa og eru allir hvattir til að kynna sér efnið og koma með ábendingar eða athugasemdir. Samráðstímabilið stendur til og með 23. maí 2025.
Athugasemdir og ábendingar má senda á Sonju Lind, íþrótta- og tómstundafulltrúa Borgarbyggðar, á netfangið:
sonjalind@borgarbyggd.is
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á þróun íþróttamála í Borgarbyggð til að taka þátt og leggja sitt af mörkum við mótun stefnunnar.
Allt efni má svo finna hér fyrir neðan: