Breyttar áherslur í innheimtumálum hjá Borgarbyggð

apríl 8, 2021
Featured image for “Breyttar áherslur í innheimtumálum hjá Borgarbyggð”

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 11. mars síðastliðinn að taka upp samstarf við Motus um innheimtu gjalda sveitarfélagsins sem ekki greiðast á réttum tíma. 

Markmiðið með samstarfinu er að tryggja jafnræði meðal íbúa, halda kostnaði vegna innheimtu vanskilakrafna í lágmarki og tryggja hagkvæmni í rekstri.  Framvegis mun því bætast ítrekunargjald á vanskilakröfur í samræmi við upphæð kröfunnar.

Borgarbyggð skorar á þá sem eiga ógreidd gjöld að ganga frá þeim fyrir 5. maí næstkomandi en að þeim tíma liðnum mun Motus annast innheimtu kröfunnar.

Hægt er að greiða kröfur í heimabanka eða hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins og semja um ógreidd gjöld.  Netfang sveitarfélagsins er thjonustuver@borgarbyggd.is og símanúmerið 433-7100.

 


Share: