Breyting á svæðisskipulagi og deiliskipulag í landi Ness

febrúar 26, 2007
Auglýst er tillaga um breytingu á svæðisskipulagi sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar 1997-2017 og deiliskipulag í landi Ness í Reykholtsdal.
A: Breyting á svæðisskipulagi sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar1997-2017
 
Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsir skv.2.mgr.14.gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. tillögu að breytingu á ofangreindu svæðisskipulagi.
Tillaga að breytingu felst í að landbúnaðarland á jörðinni Nes í Reykholtsdal er tekið undir golfvöll, þrjár frístundalóðir og tvær lóðir fyrir heilsárshús.
Sveitarstjórn bætir það tjón sem einstakir aðilar kunnað að verða fyrir við breytinguna.
Breyting á svæðisskipulagi verður til sýnis á skrifstofu Borgarbyggðar frá 28.02.07 til 28.03.2007. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 12.04.2007.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við breytingatillöguna fyrir tiltekin frest til athugasemda telst samþykkur þeim.
B: Deiliskipulag í landi Ness Reykholtsdal.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst eftir athugasemdum við ofangreinda skipulagstillögu.
Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi í landi Ness Reykholtsdal undir golfvöll, frístundabyggð og heilsárshús.
Tillaga að deiliskipulagi verður til sýnis á skrifstofu Borgarbyggðar frá 28.02.07 til 28.03.2007. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 12.04.2007.
Athugasemdir við skipulagið skulu vera skriflegar og berast til skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við breytingatillöguna fyrir tiltekinn frest til athugasemda telst samþykkur þeim.
Borgarnesi 20.02.2007
Forstöðumaður framkvæmdasviðs
Borgarbyggðar
 

Share: