Brákarhátíð, litskrúðug og skemmtileg – en líka gagnleg

júní 30, 2014
Það er ástæða til þess að þakka skipuleggjendum og undirbúningsaðilum að Brákarhátíðinni sem er að verða fastur liður hjá okkur í Borgarbyggð. Sá hópur sem að hátíðinni stendur og hefur staðið undanfarin ár hefur með krafti sínum og dug ýtt við okkur íbúum og fyrirtækjum til að skreyta í gulu, bláu og rauðu og ekki síst ýtt við okkur til þess að taka til og snyrta í kringum okkur.
Það er skemmtileg stemning sem skapast í langflestum götum Borgarness og Hvanneyrar í aðdraganda Brákarhátíðinnar og í bæjarhlutum, nágrannar sem kannski hittast ekki allajafna standa hlið við hlið og binda slaufur eða snyrta götuna „sína“ með einum eða öðrum hætti, það eru dýrmætar stundir.
Við búum í einu fegursta byggðarlagi Íslands, látum þann kraft við tiltekt og fegrun umhverfisins í aðdraganda Brákarhátíðinnar smitast yfir allt samfélagið og yfir á aðra tíma ársins en júní, höldum Borgarbyggð hreinni og snyrtilegri – í sameiningu !
 
Björn Bjarki Þorsteinsson
forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar
 
 

Share: