Borgarbyggð boðar til íbúafundar um framkvæmdir 2008

mars 12, 2008
Borgarbyggð boðar til íbúafundar þar sem kynntar verða helstu framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins á árinu 2008.
Á fundinum verða einnig fulltrúar frá Orkuveitu Reykjavíkur og Vegagerðinni vegna fyrirhugaðra fráveituframkvæmda í Borgarnesi og vegna yfirstandandi framkvæmda á hringvegi 1 í Borgarnesi.
Fundurinn verður haldinn mánudaginn 17. mars næstkomandi kl. 20:30 á Hótel Borgarnesi.
Mynd: Ragnheiður Stefánsdóttir

Share: