Bifrastarstyrkur Knattspyrnudeildar Skallagríms

febrúar 17, 2014
Háskólinn á Bifröst og Knattspyrnudeild Skallagríms auglýsa eftir umsóknum um Bifrastarstyrk Knattspyrnudeildar Skallagríms.

Í Bifrastarstyrknum felst að skólagjöld við Háskólann eru felld niður gegn því að leikmaðurinn leiki knattspyrnu með meistaraflokki Skallagríms á samningstímanum, sem er eitt skólaár eða samkvæmt nánara samkomulagi. Á umsókninni þarf að koma fram starfsferill, námsferill og knattspyrnuferill auk annarra þátta sem umsækjandi telur mikilvægt að komi fram. Umsóknir sendist á:
ivar@menntaborg.is fyrir 1. apríl næstkomandi. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um styrkinn hjá formanni Knattspyrnudeildar Skallagríms, Ívari Erni Reynissyni, í síma 695 2579 eða á fyrrgreindu netfangi.

 

Share: