Barnamenningarhátíðin BARNÓ– BEST MEST VEST 2026

apríl 14, 2026
Featured image for “Barnamenningarhátíðin BARNÓ– BEST MEST VEST 2026”

Langar þig að hafa áhrif og skapa eitthvað skemmtilegt?
Leitað er að hressum og hugmyndaríkum krökkum á Vesturlandi í stýrihóp Barnó – BEST MEST VEST sem fer fram í október.

Í stýrihópnum færð þú að taka þátt í að móta hátíðina, koma með hugmyndir, hafa áhrif og skapa skemmtilega upplifun fyrir önnur börn

Þetta er frábært tækifæri til að láta rödd þína heyrast og prófa eitthvað nýtt.

Athugið að þátttakendur þurfa að vera búsettir á Vesturlandi.

Nánari upplýsingar og skráningu má finna HÉR

 


Share: