Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi halda fundi til að kynna verkefnið „Bættur rekstur – Betri afkoma til að örva nýsköpun í starfandi fyrirtækjum á Vesturlandi 2019“ sem unnið verður í samvinnu við ráðgjafafyrirtækið Áttir ehf. Verkefnið er áhersluverkefni í Sóknaráætlun Vesturlands.
Miðvikudagurinn 13. febrúar
Í Kaupfélaginu á Akranesi kl. 13
Í Símenntunarmiðstöðinni, Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi kl. 16
Í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal kl. 20
Föstudagurinn 15. febrúar
Á bæjarskrifstofunni í Stykkishólmi kl. 10
Á bæjarskrifstofunni í Grundarfirði kl. 13
Í Átthagastofunni í Snæfellsbæ kl. 17
Á fundunum verður farið yfir verkefnið og tækifæri starfandi fyrirtækja til að bæta rekstur sinn og afkomu með nýsköpun á öllum sviðum rekstrarins.
Vakin er athygli á því að verkefnið Bættur rekstur – Betri afkoma í starfandi fyrirtækjum nær til starfandi fyirirtækja í öllum starfsgreinum og eru forsvarsmenn fyrirtækja hvattir til að mæta og kynna sér hvort verkefnið geti falið í sér tækifæri fyrir viðkomandi fyrirtæki.
Atvinnuráðgjöf SSV og Áttir efh.