Bæklingur um hættu á heilsutjóni vegna gosösku

apríl 28, 2010
Fjölmiðlateymi Samhæfingarstöðvar Almannavarna hefur tekið saman bækling sem nefnist „Hætta á heilsutjóni vegna gosösku – Leiðbeiningar fyrir almenning”. Bæklingurinn er þýddur úr ensku og í hann settar íslenskar myndir með góðfúslegu leyfi Morgunblaðsins. Hann er þýddur, yfirlesinn og útgefinn í samvinnu Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, Rauða Kross Íslands, Landspítala og Landlæknis / Sóttvarnalæknis.

Bæklingurinn er að sögn fjölmiðlateymisins ekki fullkominn en þegar færi gefst mun „ritstjórn” þessara stofnana koma saman og vinna hann betur.

Bæklinginn má finna á heimasíðu almannavarna.

 

Share: