Framkvæmdir við Kveldúlfsgötu

september 1, 2016
Featured image for “Framkvæmdir við Kveldúlfsgötu”

Byggðaráð samþykkti á fundi sínum þann 21. júlí 2016 að gera viðbótarsamning  við Borgarverk ehf um jarðvegsskipti og malbikun Kveldúlfsgötu.  Í framhaldi af þessari ákvörðun Byggðaráðs er OR – Veitur ohf að meta hvort fyrirtækið láti setja nýjar regnvatnslagnir í götuna.  Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um hvort farið verður í þessa tvöföldun fráveitukerfisins í Kveldúlfsgötu en stefnt að því að sú ákvörðun liggi fyrir í næstu viku. (ljósm: GJ)


Share: