Framkvæmdir hafnar við Grunnskólann í Borgarnesi

maí 23, 2018
Featured image for “Framkvæmdir hafnar við Grunnskólann í Borgarnesi”

Framkvæmdir eru hafnar við Grunnskólann í Borgarnesi, en þar á að rísa viðbygging sem hýsir eldhús, sal og kennslurými. Einnig verður farið í endurbætur í núverandi húsnæði. Nemendur grunnskólans hafa undanfarin sautján ár haft aðgang að mötuneyti Hótel Borgarness í góðu samstarfi við rekstraraðila hótelsins. Með eldhúsi og sal í nýrri viðbyggingu gefst nemendum kostur á að matast í skólanum. Horft verður til þess að Borgarbyggð er heilsueflandi samfélag og verða viðmið Embætti landlæknis um heilsueflandi grunnskóla lögð til grundvallar í mötuneyti skólans, sjá: Hér.

Einnig gerir salur skólans það að verkum að nemendur geta auðveldlega safnast saman í daglegan samsöng, á skólaetningu og skólaslit og aðrar sameiginlegar samkomur sem eru fastir liðir í starfi skólans. Hluti skólahúsnæðisins var komið til ára sinna og er þörf á töluverðum endurbótum innanhúss. Endurbæturnar sem farið verður í á næstu árum gera það að verkum að öll umgjörð skólastarfsins verður til fyrirmyndar og starfsaðstæður nemenda og kennara munu stórbatna.


Share: