Út er kominn 12.árgangur Borgfriðingabókar sem er ársrit Sögufélags Borgarfjarðar en bókin hefur komið út samfellt síðan 2004 en á árunum 1981-1984 komu út 4. árgangar í þremur bindum. Í Ritnefnd bókarinnar sátu Snorri Þorsteinsson formaður, Ásdís Helga Bjarnadóttir og Sævar Ingi Jónsson. Bókin í ár er sú stærsta í blaðsíðum talið sem út hefur komið alls 286 bls. enda …
Sauðamessa 15. október – fréttatilkynning
Fjárfestar athugið!Sauðamessa 2011 í Borgarnesi laugardaginn 15. október. Kjörið tækifæri fyrir Kínverska fjárfesta, sem og alla aðra, að festa sér fé því nóg verður af lausafé að vanda í réttinni rétt við Skallagrímsgarð. Síðan má benda á, líkt og margir góðir handverksmenn þekkja, að úr sauðavölum, t.d. má gera hina glæsilegustu skartgripi, meðal annars fjárfestar. Slíkar festar verða án efa …
Nýtt aðalskipulag komið á heimasíðuna
Svandís staðfestir aðalskipulagið Þann 29. júní sl. staðfesti Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra nýtt aðalskipulag fyrir Borgarbyggð 2010-2022 og hefur það tekið gildi. Fyrirtækið Landlínur í Borgarnesi sá um gerð aðalskipulagsins í samvinnu við starfsfólk sveitarfélagsins. Aðalskipulagið má nálgast hér og undir linknum Aðalskipulag Borgarbyggðar hér til hliðar.
Matráð vantar í Andabæ
Matráð vantar í leikskólann Andabæ, tímabundið vegna forfalla. Um er að ræða 100% starf með vinnutímann 8-16. Andabær er leikskóli á heilsubraut og leggjum við áherslu á að bjóða upp á hollan mat unninn frá grunni í leikskólanum. Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið. Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun …
Styrktartónleikar í Hjálmakletti
Tónleikar til styrktar Jóhanni Pálssyni bónda á Smiðjuhóli fara fram í Hjálmakletti fimmtudaginn 8. september kl. 20.30. Húsið opnar kl. 20.00. Auglýsingu má sjá hér.
Borgarbyggð og Bifröst í samstarf
Nýverið undirrituðu Páll Brynjarsson sveitarstjóri og Bryndís Hlöðversdóttir rektor Háskólans Bifröst samkomulag milli Borgarbyggðar og háskólans um afslátt á þjónustukaupum sveitarfélagsins hjá skólanum. Fyrr í sumar var einnig undirritað samkomulag milli sömu aðila um kaup Borgarbyggðar á 30 milljóna stofnfé í Háskólanum á Bifröst. Kaupin koma til framkvæmda á árunum 2012 – 2014. Þjónustusamningurinn er um verulegan afslátt af kaupum …
Umferðaröryggisáætlun Borgarbyggðar
Umferðaröryggishópur var starfandi hjá Borgarbyggð frá árinu 2006 ársins 2010. Hlutverk hans var að vinna að stefnumörkun í umferðaröryggismálum í Borgarbyggð. Umferðaröryggisátak var sett af stað þann 16. mars 2010 þegar umferðaröryggishópurinn hóf samstarf við Umferðastofu. Samstarfssamningur milli Borgarbyggðar og Umferðastofu var svo undirritaður í janúar á þessu ári. Í sumar var Inga Björk Bjarnadóttir ráðin til að vinna að …
Gamli miðbærinn fegraður
Nú er unnið að lokafrágangi vegna þökulagningar í gamla miðbænum, nánar tiltekið við Brákarsund en um 1.700 m2 verða graslagðir að þessu sinni. Það er fyrirtækið HS-Verktak í Borgarnesi sem annast framkvæmdina. myndir_jh
Breyttur útivistartími 1. september
Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. september. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár. Útivistarreglurnar eru samkvæmt …
Laust starf í Holti
Starfsmaður óskast til starfa í Holti, skammtímavistun fyrir fötluð börn. Um er að ræða hlutastarf einvörðungu um um helgar. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af vinnu með fötluðum. Launakjör eru skv. kjarasamningi Kjalar og launanefndar sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 12. september n.k. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Kristinsdóttir forstöðumaður í s. 4337100, …