Leikskólanum Andabæ vantar leikskólakennara/leiðbeinanda í 90% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Um er að ræða afleysingarstarf á deildum. Samkvæmt jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um. Nánari upplýsingar veitir Áslaug Ella Gísladóttir leikskólastjóri í síma 4337170 eða gegnum netfangið aslaug@borgarbyggd.is Umsóknarfrestur rennur út 6. mars.
Úttekt á framkvæmd stefnu um menntun án aðgreiningar á Íslandi
Niðurstöður úttektar Evrópumiðstöðvar um menntun án aðgreiningar á Íslandi var kynnt í Safnahúsinu við Hverfisgötu fimmtudaginn 2. mars sl. Úttektin nær til leik-, grunn-, og framhaldsskólastiga þar sem kannað er hvernig til hefur tekist við innleiðingu hugmyndafræðinnar um menntun án aðgreiningar. Aldrei hefur áður verið gerð jafn heildstæð úttekt sameiginlega fyrir þessi þrjú skólastig. Fór úttektin fram í fimm sveitarfélögum, …
Borgarnes 150 ára – Tíminn gegnum linsuna
Þann 22. mars næstkomandi verður því fagnað að 150 ár eru síðan Borgarnes fékk verslunarleyfi. Þann dag heldur sveitarstjórn Borgarbyggðar hátíðarfund í Kaupangi, elsta húsi Borgarness, kl. 15.00. Því næst verður opnuð ný sýning í Safnahúsi og hefur hún hlotið heitið Tíminn gegnum linsuna. Þar verða sýndar ljósmyndir sem fjórir ljósmyndarar hafa tekið í Borgarnesi á 20. öld. Val á …
Undirritun samninga vegna ljósleiðaravæðingar 2017.
Fulltrúar fjarskiptasjóðs og 24 sveitarfélaga skrifuðu í gær undir samninga um styrki sjóðsins til sveitarfélaganna vegna ljósleiðaravæðingar þeirra í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt. Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, staðfesti einnig samningana með undirskrift sinni og fór athöfnin fram á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sveitarfélögin 24 fá samtals 450 milljónir króna í styrki, allt frá um 1,5 milljónum króna uppí nærri …
Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar fær viðurkenningu frá Landvernd
Landvernd stóð fyrir ráðstefnu um Skóla á grænni grein í byrjun febrúar, en það er stærsta verkefni í menntun til sjálfbærni á Íslandi og í heiminum öllum. Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, og Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra ávörpuðu ráðstefnugestina og veittu tveimur skólum sérstaka viðurkenningu fyrir að hafa unnið flesta Grænfána. Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar var einn þeirra en …
Snjómokstur frá sorpílátum
Eins og gefur að skilja er ófært fyrir starfsfólk í sorphirðu að draga sorpílát upp úr þeim sköflum sem víða eru og því eru íbúar vinsamlegast beðnir að huga að snjómokstri frá sorpílátum. Græna tunnan verður losuð miðvikudaginn 1. mars í Borgarnesi og því væri gott ef íbúar tækju sér skóflu í hönd í dag til að auðvelda sorphirðu.
Útboð á skóla- og tómstundaakstri
Ríkiskaup, fyrir hönd Borgarbyggðar og Skorradalshrepps óska eftir tilboðum í skóla- og tómstundaakstur fyrir nemendur, til og frá skóla að morgni og aftur heim síðdegis, alla skóladaga. Útboðið skiptist í 7 flokka og undirflokka (leiðir). Heimilt er að bjóða í einstaka flokka eða einstakar leiðir (undirflokka) útboðsins. Óskað er eftir tilboðum í skólaakstur með grunnskólanemendur í fjögur skólaár, þ.e. frá …
150 ára afmæli Borgarness
Þann 22. mars n.k. verða liðin 150 ár síðan Borgarnes fékk verslunarréttindi. Þessara tímamóta verður minnst á ýmsan hátt. Sveitarstjórn Borgarbyggðar mun halda hátíðarfund í Kaupangi, elsta húsi Borgarness kl. 15:00 í tilefni dagsins. Kl. 17:00 verður opnuð ljósmyndasýning í Safnahúsi Borgarfjarðar þar sem myndir fjögurra ljósmyndara frá ýmsum tímum í sögu Borgarness verða sýndar. Þann 29. apríl n.k. verður …
Milljarður rís
UN Women vinnur að verkefninu „Öruggar borgir“ í fjölda landa. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á stöðu kvenna víða um heim og því ofbeldi sem þær eru beittar. Athygli almennings á verkefninu hefur verið vakin með því að safna fólki saman til að dansa í hádeginu, einn dag á ári. Undanfarin ár hefur þessi viðburður einungis verið haldinn í …
Urðunarstaðurinn við Bjarnhóla – Opnunartímar
Urðunarstaðurinn við Bjarnhóla – Opnunartímar Nú hefur verið lokið við að girða af og loka móttökustað fyrir óvirkan úrgang við Bjarnhóla. Þetta svæði er ætlað til móttöku óvirks úrgangs frá verktökum og fyrirtækjum á svæðinu og hefur starfsleyfi Umhverfisstofnunar sem slíkur. Frá og með 1. mars 2017 verða fastir opnunartímar á svæðinu á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 13:00 og …