Egla tekur til hendinni

Egla tekur til hendinni varð til á síðasta ári þegar Borgarbyggð hóf hvatningarátak til að draga úr notkun á einnota burðarplastpokum í verslunum sem hefur gengið mjög vel. „Egla“ hefur nú heimsótt  flestar stofnanir Borgarbyggðar til að skoða möguleika á að draga úr notkun á einnota plastpokum í daglegum rekstri. Eins og búast mátti við eru stjórnendur og starfsfólk allra …

Sorphirða og ófærð

Sorphirða gengur afar hægt vegna veðurs og færðar. Unnið er að hirðu á almennu sorpi í minni þéttbýliskjörnum þriðjudaginn 13. febrúar  og ekki liggur fyrir hvenær því verður lokið. Í kjölfarið er græna tunnan hirt í Borgarnesi. Íbúar eru hvattir til að moka snjó frá ílátum og úr innkeyrslum til að auðvelda starfsfólki sorphirðunnar sín störf.

Snjómokstur

Unnið er að snjómokstri eins og fært er eftir illviðri helgarinnar og töluverða snjókomu nú í nótt. Forráðamenn bíla og annarra ökutækja í þéttbýlinu eru vinsamlegast beðnir um að taka tillit til þessa ástands þegar bílum er lagt. Með tillitssemi og samvinnu alllra þá gengur hreinsunarstarf greiðlegar fyrir sig öllum til hagsbóta. Snjómokstursfulltrúar kalla verktaka til verka úti í héraðinu …

Pistill um snjómokstur

Nú stendur yfir vetrarríki með snjókomu, vindgangi og skafrenningi. Þetta veðurfar hefur í för með sér mikið álag á alla, bæði íbúana sem þurfa að komast leiðar sinnar, oft við erfiðar aðstæður og síðan og ekki síður á þá sem annast þjónustu við íbúana við snjómokstur. Þeir vinna sitt starf af bestu getu, vinna hefst um kl. 5:00 á morgnana …

Tafir á sorphirðu

Tafir á sorphirðu í dreifbýli Vegna veðurs og ófærðar tefst  sorphirða í dreifbýli og ekki verður unnt að hirða sorp í   Þverárhlíð, Flókadal  og Lundarreykjadal  fyrr en eftir helgi.  

Köttur í óskilum 2018-02-09

Frá dýraeftirlitinu Þetta er hann Oreo. Óörmerktur högni sem var á flakki á Bifröst. Eigandinn fluttur og hann átti að vera í fóstri. Ef einhver býr yfir upplýsingum um Oreo þá værum við hjá dýraeftirlitinu ánægð með að fá þær. Annars verðir honum fundið annað heimili. Uppl. 8925044

Fyrirlestur í Safnahúsi

Már Jónsson prófessor flytur fyrirlestur um bókina Pilt og stúlku og höfund hennar í Safnahúsi á fimmtudaginn eftir viku, þann 15. febrúar kl. 20.00. Verkið skrifaði Jón Thoroddsen þegar hann stóð á þrítugu, en hann var á sínum tíma sýslumaður Borgfirðinga og bjó á Leirá. Í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu Jóns. Af því tilefni hefur fyrsta útgáfa …

Ófærð og illviðri

Nú kyngir niður snjó um allt sveitarfélagið og þörfin fyrir snjómokstur er víða.  Unnið er að mokstri og eru vegir og götur rudd þegar best þykir m.a. út frá snjóþyngslum og veðráttu. Ekki er hægt að gera ráð fyrir að allir vegir í dreifbýli og götur í þéttbýli séu greiðfærar öllum stundum og því  eru íbúar beðnir að huga að …

Öldubúðin opnar

Vorum að opna verslun á  Brákarbraut 25. Okkar margrómuðu fjölnota pokar, kerti og ýmislegt til sölu á góðu verði. Opnunartími 10 – 15, alla virka daga Verið velkomin. Starfsfólk Öldunnar.

Íþróttir og tómstundir í Borgarbyggð

Opinn samráðsfundur verður haldinn um íþróttir og tómstundir í Borgarbyggð þriðjudaginn 13. febrúar kl.20:00 í Hjálmakletti Dagskrá: Mikilvægi stefnumótunar í íþróttum og tómstundum Jakob Frímann Þorsteinsson, aðjúnkt í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands Umræður um skipulag íþrótta og tómstunda í Borgarbyggð Markmið samráðsfundarins er að leita svara við því hvernig staðið verði að fjölbreyttum íþróttum og tómstundum fyrir íbúa …