Fundur um skipulagsmál í Borgarnesi

  Fundur um skipulagsmál í Borgarnesi Opinn kynningarfundur um breytingar á aðalskipulagi á svæðinu frá Granastöðum að Engjaási í Borgarnesi sem og deiliskipulagstillögu um íbúðabyggð í landi Granastaða, verður haldinn að Borgarbraut 65 efstu hæð kl. 20.30 fimmtudaginn 12. maí n.k. Auk kynningar bæjaryfirvalda á skipulagstillögunum munu forsvarsmenn Búmanna gera grein fyrir hugmyndum sínum um byggingu á íbúðum fyrir eldri …

Sameiningarkosningar

Úrslit sameiningarkosninganna sem fram fóru 23. apríl s.l. í 5 sveitarfélögum norðan Skarðsheiðar voru þau að íbúar allra sveitarfélaganna nema Skorradalshrepps samþykktu tillögu sameiningarnefndar um sameiningu Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps, Kolbeinsstaðahrepps og Skorradalshrepps.   Niðurstöður í hverju sveitarfélagi fyrir sig voru þessar: Borgarbyggð: Atkvæði greiddu 770 af 1836 á kjörskrá sem er 42% kjörsókn. Já sögðu 663 sem er 86,2% Nei …

Úrslit sameiningakosninga í Borgarbyggð

Úrslit sameiningarkosninga í Borgarbyggð voru þessi:   Atkvæði greiddu 770 eða 42% þeirra sem voru á kjörskrá. Já sögðu 663 Nei sögðu 94 Auðir seðlar voru 13.   Af þeim fimm sveitarfélögum sem tóku þátt í sameiningarkosningunum var sameining samþykkt í fjórum þeirra en felld í Skorradalshreppi.  

Kosning um sameiningu sveitarfélaga

Laugardaginn 23. apríl verður kosið um sameiningu Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps, Kolbeinsstaðahrepps og Skorradalshrepps.   Í samræmi við bæjarmálasamþykkt verða kjörfundir á eftirtöldum stöðum í Borgarbyggð:   Í Lyngbrekku frá kl. 11,oo – 20,oo fyrir svæðið vestan Langár. Í Þinghamri frá kl. 11,oo – 20,oo fyrir svæðið ofan Gljúfurár. Í Grunnskólanum í Borgarnesi frá kl. 09,oo – 22,oo fyrir svæðið milli …

Heimsókn frá sveitarfélaginu Tolga í Noregi

Þriðjudaginn 12. apríl kom 14 manna hópur starfsmanna frá sveitarfélaginu Tolga í Noregi í heimsókn í Borgarfjörð. Í Borgarnesi var fundað og farið yfir rekstur og uppbyggingu á starfsemi sveitarfélaga á Íslandi og í Noregi. Eftir gagnlegar umræður var farið í sund og létu gestir okkar ferðaþreytuna líða úr sér í heitu pottunum. Síðan heimsótti hópurinn Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og …

Fyrirlestur um uppeldi fyrir foreldra !

Úlfatíminn nefnist fyrirlestur um uppeldismál sem verður í Óðali í kvöld miðvikudagskvöldið 30. mars kl. 20.00 Fyrirlesari verður Gylfi Jón Gylfason yfirsálfræðingur hjá skólaskrifstofu Reykjanesbæjar. Sérstök áhersla verður lögð á erfiðleikana í uppeldi barna og unglinga með athyglisbrest og ofvirkni í þessum fyrirlestri en Gylfi hefur haldið fjölda erinda og fyrirlestra um uppeldi. Mætum í Óðal   Fjölskyldusvið Borgarbyggðar Rauðikross …

Sundlaugin Varmalandi opin um páskahelgina

Sundlaugin Varmalandi verður opin um páskana sem hér segir: 24. mars (Skírdagur) kl. 13-18 25. mars (Föstudagurinn langi) kl. 13-18 26. mars (Laugardagur) kl. 13-18 27. mars (Páskadagur)kl. 13-18 Heitur pottur Rennibraut Ljósabekkur Gufubað Verið velkomin ! Starfsfólk  

Passíusálmar á föstudaginn langa í Borgarneskirkju kl 14.00

Fermingarbörn frá árinu 2000 lesa úr verkum Hallgríms Péturssonar. Lesarar eru: Árni Gunnarsson, Guðmundur Björn Þorbjörnsson, Heiðar Lind Hansson , Jóhanna Sveina Hálfdánadóttir og Inga Tinna Sigurðardóttir. Steinunn Árnadóttir leikur á orgel kirkjunnar, milli lestra.   Umsjón og kynningu hefur Björk Jóhannsdóttir.   Alls verða lesnir 15 sálmar. Athöfnin varir í liðlega klukkustund.   Verið velkomin í kyrrð og íhugun …

Sundlaugin opin um páska !

Sundlaugin í Borgarnesi er alltaf vinsæl um páskahelgina. Opið verður sem hér segir: Skírdag fimmtudaginn 24. mars frá kl. 09.00 – 18.00 Föstudaginn langa 25. mars frá kl. 09.00 – 18.00. Laugardaginn 26. mars frá kl. 09.00 – 18.00. Páskadag sunnudaginn 27. mars frá kl. 09.00 – 18.00 Annan í páskum mánudaginn 28. mars frá kl. 09.00 – 18.00   …

Æsispennandi oddaleikur við Fjölni í kvöld

Ljóst er að Borgfirðingar munu fjölmenna á oddaleik Fjölnis og Skallagríms í átta liða úrslitum í kvöld í Grafarvogi. Leikurinn verður örugglega æsispennandi og ætla Grafarvogsbúar að fjölmenna en Prentsmiðjan Oddi gefur Fjölnismönnum 200 miða á leikinn þannig að við megum hafa okkur öll við ef á að heyrast eitthvað í stúkuhluta Skallagrímsmanna í kvöld. Áfram strákar og gerið ykkar …