Réttardagar í Borgarbyggð

Frá Grímsstaðarétt haustið 2009Bændasamtök Íslands hafa birt lista yfir fjár- og stóðréttir haustið 2010 á vef sínum. Það er Ólafur Dýrmundsson ráðunautur sem hefur tekið listann saman. Heildarlistann yfir allar réttir á landinu má nálgast á vef Bændasamtakanna http://bondi.is/   Réttir í Borgarbyggð verða sem hér segir: Kaldárbakkarétt í Kolbeinsstaðahreppi sunnudaginn 5. sept.Fljótstungurétt í Hvítársíðu laugardaginn 11. sept.Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal …

Góð þátttaka í sumarlestri Safnahúss

Hluti gesta á uppskeruhátíðUppskeruhátíð sumarlestrarátaks Héraðsbókasafns Borgarfjarðar var haldin fimmtudaginn 19. ágúst síðastliðinn og var mikið fjör þegar krakkarnir mættu í Safnahúsið í Borgarnesi. Farið var í leiki og þrautir leystar undir styrkri stjórn Sævars Inga Jónssonar héraðsbókavarðar og Eddu Bergsveinsdóttur sumarstarfsmanns safnanna. Meðal annars þurftu foreldrar og börn að kljást við þá þraut að stökkva jafnfætis yfir sauðarlegg, en …

Úthlutun úr Minningarsjóði Guðmundar Böðvarssonar

Ljóðaverðlaunum Guðmundar Böðvarssonar og Borgfirskum menningarverðlaunum verður úthlutað á samkomu í Snorrastofu í Reykholti sunnudaginn 5. september næstkomandi. Minningarsjóður Guðmundar Böðvarssonar skálds og bónda á Kirkjubóli og Ingibjargar Sigurðardóttur konu hans veitir verðlaunin. Sjóðurinn var stofnaður árið 1974 og var fyrsta verkefni hans að reka hús þeirra hjóna á Kirkjubóli sem bústað fyrir skáld og listafólk. Aðilar sjóðsins eru Rithöfundasamband …

Hundur hefur tapast.

Hundur að nafni Carlos hvarf frá landi Stóra-Fjalls í gærkvöldi kl. 21 og hefur ekki sést síðan né fundist þrátt fyrir mikla leit. Hundurinn er brúnn og hvítur Boxer með hvíta blesu, hvíta bringu, hvíta sokka og örmerktur með ól um hálsinn.   Þeir sem hafa orðið hundsins varir eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Heiðmund Clausen í síma …

Könnun á aðgengi fatlaðra

Inga Björk Bjarnadóttir sem unnið hefur hjá Borgarbyggð í sumar við skráningu gæludýra var einnig ráðin til að kanna aðgengi fatlaðra hjá stofnunum Borgarbyggðar og skila skýrslu um niðurstöðurnar. Miðvikudaginn 18. ágúst hafði Inga Björk skipulagt ,,hjólastólarallý“ þar sem hún bauð Páli S. Brynjarssyni sveitarstjóra og Jökli Helgasyni forstöðumanni framkvæmdasviðs að ferðast um á hjólastólum á nokkra staði í Borgarnesi. …

Borgarbyggð auglýsir eftir húsverði í mennta- og menningarhúsið í Borgarnesi

Húsvörð vantar í 60% starf við mennta- og menningarhúsið í Borgarnesi. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf eigi síðar en 1. september n.k. Helstu verkefni húsvarðar eru; eftirlit með húsnæðinu og húsbúnaði, umsjón með þrifum og viðhaldi og umsjón með útleigu á menningarsal hússins.   Hæfniskröfur – Færni í mannlegum samskiptum – Sjálfstæð vinnubrögð – Skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður – …

Nú styttist í skólasetningu grunnskólanna

Nú er farið að styttast í skólabyrjun hjá grunnskólunum. Grunnskóli Borgarness verður settur í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi mánudaginn 23. ágúst og hefst athöfnin kl. 13.00. Allir velkomnir. Að skólasetningu lokinni hitta nemendur umsjónarkennara sína í skólanum. Skólarútan fer úr Sandvík kl. 12.40 og til baka frá biðskýli í Skallagrímsgötu kl. 14.15. Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 24. ágúst. Innkaupalistar …

Skráning nýnema í Tónlistarskólann

Skráning nýnema í Tónlistarskóla Borgarfjarðar fyrir veturinn 2010 – 2011 hefst fimmtudaginn 19. ágúst næstkomandi. Þá verður tekið við nýjum umsóknum í Tónlistarskólanum að Borgarbraut 23 frá kl. 14.00-17.00 og í síma 437 2330 eða á netfangið tskb@simnet.is  

Menntaskóli Borgarfjarðar

Föstudaginn 20. ágúst næstkomandi kl. 09.00 koma nýnemar við Menntaskóla Borgarfjarðar til starfa en þá hefst skólahald með sameiginlegum morgunverði nýnema og starfsfólks. Í framhaldi morgunverðarins fá nýnemar afhentar stundaskrár og fleiri gögn varðandi skólastarfið. Einnig fá nemendur afhentar fartölvur.Eldri nemendur koma til starfa sama dag kl. 13.00 og fá afhentar stundaskrár, fartölvur og önnur tilheyrandi gögn.