Laust starf í skólaseli á Hvanneyri

Grunnskóli Borgarbyggðar auglýsir eftir starfsmanni í skólasel á Hvanneyri í hlutastarf. Starfið byggir á því að vinna með börnum frá því er skóla lýkur á daginn til rúmlega fjögur, fimm daga í viku. Áhugasamir vinsamlega hafið samband við skólastjóra GBF Ingibjörg Ingu Guðmundsdóttur í síma 430-1504/847-9262, netfang; inga@gbf.is eða við deildarstjóra Hvanneyrardeildar Ástríði Einarsdóttur í síma 430-1526, netfang; asta@gbf.is   …

Frá Umhverfis- og skipulagssviði

Grænt og fallegt_jhÍ september verða göturnar Birkiklettur og Fjóluklettur malbikaðar en þær eru samanlagt tæplega 3.000 m2 að flatarmáli. Þá verður Sólbakki norður klæddur bundnu slitlagi en gatan er um 2.000 fermetrar að flatarmáli. Verklok beggja verka eru áætluð 1. október næstkomandi og verktaki er Borgarverk. Nú er einnig verið að leggja lokahönd á þökulögn á hluta svæðisins milli þjóðvegar …

Stefnumótun í tómstundamálum

Opinn íbúafundur   Tómstundanefnd Borgarbyggðar boðar hér með til opins fundar um stefnumótun í tómstundamálum í sveitarfélaginu.   Með þessu móti vill Borgarbyggð virkja sem flesta til að móta stefnu í málaflokki sem varðar okkur öll. Óskað er eftir þátttöku allra þeirra sem láta sig tómstundamál varða. Ekki verður stuðst við fyrirfram ákveðna flokkun á tómstundamálum heldur mun fundurinn sjálfur …

Framkvæmdir við Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri

Við grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri er nú verið að bæta aðkomuna að skólanum. Meðal þess sem gert verður er nýtt bílastæði fyrir starfsfólk og gesti skólans og snúningsplan eða nokkurs konar hringtorg fyrir skólabíl og aðra bíla, en með tilkomu hringtorgsins mun öryggi gangandi vegfarenda við skólann aukast til muna frá því sem áður var. Fyrirtækið Jörvi sér um þessa …

Aðkoma bætt að Andabæ

Við leikskólann Andabæ á Hvanneyri er nú verið að bæta aðkomuna að skólanum, þar verða bílastæði máluð og þau afmörkuð með kantsteini. Miðeyja við Arnarflöt og svæðin í kring um bílastæðin verða þökulögð og eldri gangstétt við Arnarflöt framlengd og tengt aðkomunni að leikskólanum. Verktaki í verkinu er JBH-Vélar. mynd_jh    

Boðuðu verkfalli leikskólakennara aflýst

Samningar hafa náðst milli Félags leikskólakennara og Samninganefndar sveitafélaga hjá Ríkissáttasemjara.   Fyrirhuguðu verkfalli leikskólakennara hefur þar af leiðandi verið aflýst og því þarf ekki að koma til lokunar leikskóla Borgarbyggðar.  

Vegna yfirvofandi verkfalls leikskólakennara

Næstkomandi mánudag, 22. ágúst, hefst verkfall leikskólakennara, hafi ekki náðst samningar fyrir þann tíma. Komi til verkfalls hefur það í för með sér að allir félagsmenn í Félagi leikskólakennara (FL) leggja niður störf og mun það hafa mikil áhrif á starfsemi leikskóla Borgarbyggðar.   Ágreiningur er á milli samninganefnda Sambands íslenskra sveitarfélaga og FL um rétt sveitarfélaganna til að hafa …

Freyjukórinn á stefnumót

    Norrænt stefnumót verður í Reykholtskirkju í dag kl. 17.00. Þar verða Freyjukórinn í Borgarfirði og Fana mannskor frá Noregi með tónleika. Kórarnir flytja lög frá Íslandi, Noregi Svíþjóð og Rússlandi. Auglýsingu má sjá hér.  

Könnun á aðgengi unglinga að tóbaki

Miðvikudaginn 27. júlí 2011 fór fram könnun á vegum forvarnarhóps Borgarbyggðar á aðgengi unglinga að tóbaki í nokkrum verslunum og veitingastöðum í sveitarfélaginu. Könnunin var framkvæmd af Sigurþóri Kristjánssyni forstöðumanni félagsmiðstöðvarinnar Óðals, með aðstoð tveggja unglingsstúlkna frá Akranesi. Af þeim tíu stöðum sem farið var á og selja tóbak var farið að lögum um sölu á tóbaki á sex stöðum …

Innritun í Tónlistarskólann

Nemar í fiðluleikFimmtudaginn 18. ágúst næstkomandi verður Tónlistarskóli Borgarfjarðar með innritun fyrir nýnema að Borgarbraut 23. Tekið verður á móti innritunum frá kl. 14.00 – 18.00. Einnig hægt að senda tölvupóst á tskb@simnet.is eða hringja í síma 437 2330. Kennsla fer fram í Borgarnesi, á Hvanneyri, á Kleppjárnsreykjum og á Varmalandi. Í umsókn þarf að koma fram nafn, kennitala, heimilisfang …