Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Borgarfjarðar

Grunnskóli Borgarfjarðar, Kleppjárnsreykjadeild, auglýsir eftir öflugum stuðningsfulltrúa til starfa í einn og hálfan mánuð frá og með miðjum október. Viðkomandi þarf að taka skólabíl frá Hvanneyri að Kleppjárnsreykjum. Æskilegt að umsækjandi sé karlmaður. Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri GBF í síma 847-9262/430-1504, netfang; inga@gbf.is    

Bæjarstjórn Akraness vill sameiningarviðræður

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar þann 24. september sl., var tillaga Gunnars Sigurðssonar og Einars Brandssonar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um sameiningarviðræður við sveitarstjórnir Hvalfjarðarsveitar, Skorradalshrepps og Borgarbyggðar samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Bæjarstjóra var falið að fylgja málinu eftir. Í greinargerð sem fylgdi tillögunni kemur fram að á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem haldinn var nú í september, hafi innanríkisráðherra greint …

Borgarbyggð “lagði” Hornafjörð

Stefán, Eva Hlín og Jóhann Óli                                 Lið Borgarbyggðar, skipað þeim Stefáni Gíslasyni, Evu Hlín Alfreðsdóttur og Jóhanni Óla Eiðssyni, sigraði lið Hornfirðinga í spurningaþættinum Útsvari á Rúv á föstudagskvöldið. Stigatala að lokinni stórskemmtilegri viðureign liðanna, var 95-42. Símavinur liðsins, Inga Björk Bjarnadóttir stóð sig …

Skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi

Staða skólastjóra við Grunnskólann í Borgarnesi er laus til umsóknar. Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í góðu samstarfi við aðra starfsmenn skólans. Starfsemin skal einkennast af fjölbreytni, sveigjanleika og víðsýni, þar sem tekið er tillit til mismunandi þarfa, áhuga og getu nemenda. Sjá …

Minningarfyrirlestur um Snorra Sturluson

Þriðjudaginn 24. september kl. 20.30 heldur dr. Úlfar Bragason fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti um Hrafns sögu Sveinbjarnarsonar. Fyrirlesturinn er helgaður minningu Snorra Sturlusonar, sem veginn var í Reykholti 23. september árið 1241. Um árabil hefur Snorrastofa minnst dánardægurs hins mikla rithöfundar og höfðingja með því að bjóða til fyrirlestrar um málefni, sem tengjast honum og samtíð hans með einum …

Frá Björgunarsveitunum – Landsæfing framundan

Blundar í þér leikari eða viltu aðstoða við skemmtilega æfingu? Landsæfing Slysavarnarfélagsins Landsbjargar fer fram laugardaginn 12. október næstkomandi og verður að þessu sinni í Borgarfirðinum. Það eru björgunarsveitir hér á svæðinu sem skipuleggja æfinguna. Búast má við um eða yfir 200 björgunarsveitarmönnum á æfinguna. Æfing sem þessi er gríðarlega umfangsmikil og byggir á ýmiskonar verkefnum sem leyst verða aftur …

Félagsleg liðveisla

Starfsfólk óskast í félagslega liðveislu í Borgarbyggð Markmið liðveislu er að efla einstaklinga til sjálfshjálpar, veita persónulegan stuðning og aðstoð sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, svo sem aðstoð til að njóta menningar og félagslífs. Við leitum að hressum einstaklingum, 18 ára og eldri. Sveigjanlegur vinnutími. Laun skv. Kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga Umsóknir sendist á netfangið gudrunkr@borgarbyggd.is eða …

Minningarsýning í Safnahúsi Borgarfjarðar

Fimmtudaginn 19. september verður opnuð minningarsýning til heiðurs Hallsteini Sveinssyni í Safnahúsi. Hallsteinn var frá Eskiholti, fæddur árið 1903. Listasafn Borgarness var stofnað árið 1971 í tilefni af rausnarlegri listaverkagjöf Hallsteins til Borgarness. Í sýningunni er lögð áhersla á hugsjónir hans og persónuleika sem laðaði að sér marga af merkustu myndlistarmönnum Íslands. Sýningin veitir því verðmæta innsýn í listasöguna og …

Borgarbyggð í Útsvari á föstudag

Föstudaginn 20. september mun lið Borgarbyggðar mæta liði Hornafjarðar í spurningarþættinum Útsvari á Rúv. Lið Borgarbyggðar skipa þau Stefán Gíslason Borgarnesi, Jóhann Óli Eiðsson Glitsstöðum og Eva Hlín Alfreðsdóttir Borgarnesi. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á keppnisfyrirkomulaginu í þættinum. Meðal annars eru liðin ekki lengur látin hlaupa í bjöllu eða keppa í látbragðsleik en þess í stað verða kynntir inn …

Grunnskólinn í Borgarnesi – Kristján lætur af störfum

Kristján Gíslason skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi og Páll Brynjarsson sveitarstjóri hafa undirritað samkomulag um starfslok Kristjáns við skólann. Kristján lætur af störfum við skólann þann 15. október en hann mun starfa áfram fyrir sveitarfélagið og vinna að ýmsum sérverkenum á árinu 2014. Á næstu dögum verður staða skólastjóra auglýst. Þar til nýr skólastjóri tekur til starfa mun Hilmar Már Arason …