Ný tímatafla íþrótta

    Ný tímatafla íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi tekur gildi í dag, mánudaginn 7. október.   Töfluna má nálgast hér.  

Pólskir listamenn í heimsókn

Síðastliðinn þriðjudag fengum við Borgfirðingar góða heimsókn, en þeir félagar í Kraków-tríóinu komu og héldu tónleika í Borgarneskirkju á vegum Tónlistarfélags Borgarfjarðar. Tríóið samanstendur af þeim Wieslaw Kwasny fiðluleikara, Julian Tryczynski sellóleikara og Jacek Tosik-Warszawiak píanóleikara. Jacek er okkur Borgfirðingum að góðu kunnur, en hann kenndi við Tónlistarskóla Borgarfjarðar um 10 ára skeið. Jacek var einnig með píanó-masterklassa í Tónlistarskóla …

Straumlaust í hluta Borgarness

Straumleysistilkynning frá Rarik á Vesturlandi   Straumlaust verður í hluta Borgarness í nótt, frá miðnætti og til klukkan 05. Það leiðréttist hér með að ekki verður straumlaust í öllu Borgarnesi eins og sagt var hér frá í morgun. „Staumleysi varðar einungis notendur í Brákarey sem tengjast spennistöð 58 og þá notendur sem tengjast spennistöð 57 við Brákarbraut 3 (gamla Kaupfélagið). …

Matráður í Klettaborg

Laust er til umsóknar starf matráðs í leikskólanum Klettaborg sem er þriggja deilda leikskóli að Borgarbraut 101, Borgarnesi. Í leikskólanum dvelja allt að 65 börn við leik og störf og þar starfa 20 starfsmenn, rúmlega helmingur faglærðir leikskólakennarar og leiðbeinendur eru með mikla reynslu.Í leikskólanum er unnið metnaðarfullt skólastarf og er leikskólinn m.a. tilraunaleikskóli fyrir verkefnið: Heilsueflandi leikskóli sem er …

Veðurklúbburinn spáir góðri tíð

Veðurklúbburinn á Dalbæ á Dalvík hefur sent frá sér spá fyrir október. Í tilkynningu frá klúbbnum sem birt er á Vikudegi segir:   „Gert er ráð fyrir að mánuðrinn verði frekar hlýr þó komið geti ein og ein rumba í mánuðinum. Ástæða fyrir þessari spá er m.a. að októbertungl kviknar 5. þessa mánaðar kl. 00:35 í há norðri. Liðna mánuði …

Öld liðin frá stofnun Sparisjóðs Mýrasýslu

Sparisjóður Mýrasýslu tók til starfa þann 1. október 1913. Höfuðstöðvar hans voru alltaf í Borgarnesi, fyrst í húsi Kaupfélags Borgfirðinga við Skúlagötu sem nefnt var Salka. Er Kaupfélagið flutti starfsemi sína í verslunarhúsin í Englendingavík árið 1916 fylgdi sjóðurinn með og var þar fram til ársins 1920 að nýtt hús var byggt við Skúlagötu 14 (kallað Gamli sparisjóðurinn). Þar var …

Kennarar í Borgarnesi læra um kennsluaðferðina PALS

Þriðjudaginn 24. september var haldið námskeið fyrir kennara í Grunnskólanum í Borgarnesi um kennsluaðferðina PALS. Pör að læra saman (Peer-Assisted Learning Strategies) er þjálfunaraðferð sem þróuð hefur verið og rannsökuð í Bandaríkjunum í um 20 ár og hentar til að vinna með lestur og lesskilning í getublönduðum nemendahópum. Nemendur læra aðferðir til að vinna saman á skipulagðan hátt, óháð lestrargetu. …

Foreldrafundur í Borgarnesi

Fræðslunefnd Borgarbyggðar, Grunnskólinn í Borgarnesi og stjórn foreldrafélags Grunnskólans í Borgarnesi boða til foreldrafundar um málefni skólans. Á fundinum munu fræðslustjóri, starfandi skólastjóri og stjórn foreldrafélagsins kynna niðurstöður viðhorfskönnunar Skólavogarinnar, umbótaáætlun og stjórnskipulag skólans. Fundurinn verður haldinn í Hjálmakletti þriðjudaginn 8. október klukkan 20.00-22.00. Foreldrar barna í Grunnskólanum í Borgarnesi eru hvattir til að mæta. Fræðslustjóri    

Frá Orkuveitu Reykjavíkur

Áhersla á niðurgreiðslu skulda Orkuveitunnar   Orkuveita Reykjavíkur hyggst á næstu árum greiða skuldir fyrirtækisins niður um 80,3 milljarða króna samkvæmt fjárhagsáætlunum sem samþykktar hafa verið í stjórn fyrirtækisins. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 og langtímaáætlun fyrir árin 2015 til og með 2019 er áhersla lögð á áframhaldandi aðhald í rekstrinum meðan staðinn er vörður um grunnþjónustu fyrirtækisins. Áætlunin er …