Jólakötturinn kemur í Borgarnes

    Verslanir og veitingastaðir í Borgarnesi taka höndum saman og bjóða upp á skemmtilegan verslunardag laugardaginn 21. desember. Dagurinn hefur fengið nafnið “Jólakötturinn”. Flestar verslanir og veitingahús bæjarins verða með opið til kl. 22.00 og í boði verða spennandi tilboð og skemmtiatriði.  

Sveitarstjórn ályktar um mál LBHÍ

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti ályktun á fundi sínum þann 12. desember síðastliðinn þar sem mótmælt er harðlega þeim áformum, að leggja stjórn Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri undir Háskóla Íslands. Ályktunin sveitarstjórnar er svohljóðandi: „Sveitarstjórn Borgarbyggðar ítrekar enn mikilvægi þess að Landbúnaðarháskóli Íslands haldi sjálfstæði sínu og að skólanum verði tryggðar fjárveitingar til að geta sinnt hlutverki sínu áfram sem sjálfstæður skóli. …

Fjárhagsáætlun samþykkt samhljóða

Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir árið 2014 sýnir að rekstur sveitarfélagsins er traustur. Þar kemur fram að rekstarniðurstaða er jákvæð, skuldir halda áfram að lækka og sköttum og þjónustugjöldum er að mestu haldið óbreyttum. Álagningaprósenta fasteignaskatts og lóðaleigu er óbreytt, sömuleiðis öll gjöld er tengjast félagsþjónustu, grunn-,leik- og tónlistarskólum sem og æskulýðs- og tómstundamálum. Auknu fjármagni verður varið til viðhalds eigna, gatna …

Lay Low í Landnámssetri

Fimmtudaginn 12. desember verður Lay Low með tónleika í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Á tónleikunum mun Lay Low njóta fulltingis hljómsveitar sinnar sem skipuð er þeim Birki Hrafni Gíslasyni og Bassa Ólafssyni. Um upphitun sér Snorri Helgason og hefjast tónleikarnir kl. 21.00.    

Upplestur á prjóna-bókakaffi í Snorrastofu

Sigrún Elíasdóttir verður gestur kvöldsins á prjóna-bókakaffi í bókhlöðu Snorrastofu í kvöld kl. 20.00. Sigrún les úr nýrri bók sinni, “Kallar hann mig, kallar hann þig”. Bókin fjallar um afa Sigrúnar, Jóhannes Arason frá Seljalandi í Gufudalssveit. Einnig verður kynnt bókin “Héraðsskólar Borgfirðinga” eftir Lýð Björnsson en Snorrastofa gefur bókina út. Allir velkomnir.    

Björgunarsveitin Heiðar selur jólatré

Björgunarsveitin Heiðar verður með jólatrjáasölu í samvinnu við Skógræktarfélag Borgarfjarðar í Grafarkotsskógi laugardaginn 14. og sunnudaginn 15. des. kl. 12.00 – 16.00. Björgunarsveitarmenn verða á staðnum og aðstoða fólk við að velja sér jólatré og fella það. Þeir munu svo sjá um að pakka trjánum. Grafarkotsskógur er við þjóðveg 1 milli BSRB Munaðarnes og Bifrastar.  

Lægri þrýstingur á heita vatninu

Vegna tenginga nýs kafla í Deildartunguæðinni verður lægri þrýstingur hitaveitu á Vesturlandi í dag, miðvikudaginn 11. desember. Þetta er síðasta lokun fyrir veituna vegna framkvæmda við endurnýjun á þessum vetri. Um er að ræða tengingu á 1.400 metra stálkafla við Neðri-Hrepp og Skeljabrekku. Til þess að spara vatn verður þrýstingur lækkaður á dreifikerfunum á Akranesi og Borgarnesi frá um kl. …

Sundlaug og pottar loka í dag

Vegna tenginga hjá Orkuveitunni verður heita vatnið tekið af útisundlauginni og heitu pottunum í Borgarnesi. Útisvæði sundlaugarinnar lokar því fljótlega upp úr hádegi eða eftir því sem vatnið kólnar. Opnað verður aftur á fimmtudagsmorgunn.  

Andabær verður heilsuleikskóli

Leikskólinn Andabær á Hvanneyri verður formlega að heilsuleikskóla á morgun, miðvikudaginn 11. desember. Af því tilefni verður vígsluhátíð í leikskólanum sama dag og hefst hún kl. 14.30. Skólinn hefur verið leikskóli á heilsubraut síðustu þrjú ár. Markmið með heilsustefnunni er að auka gleði og vellíðan jafnt barna og starfsfólks leikskólans með áherslu á hreyfingu, holla næringu og listsköpun. Börn og …

Galdratákn og guðdómlegt súkkulaði

Jóhanna Harðardóttir, Kjalnesingagoði og völva verður í Blómasetrinu – Kaffi Kyrrð í dag, þriðjudaginn 10. desember frá kl. 17.15 – 21.00. Ásamt því að kynna og árita bók sína “Galdratákn guðanna” mun hún kynna og lesa í rúnir fyrir fólk.Á morgun, miðvikudag verður svo guðdómleg súkkulaðikynning í Blómasetri frá kl. 19.30-22.00.