Undirbúningur hafinn að byggingu vallarhúss við Skallagrímsvöll

febrúar 8, 2008
Á fundi sínum þann 6. febrúar 2008 skipaði byggðaráð þau Kristmar Ólafsson, Björn Bjarka Þorsteinsson og Jenný Lind Egilsdóttur í vinnuhóp sem undirbúa á byggingu vallarhúss við Skallagrímsvöll. Auk þeirra skipa UMSB og UMF Skallagrímur hvort sinn fulltrúann í hópinn.
Á fjárhagsáætlun þessa árs er 20 milj. kr. varið til byggingar hússins. Vinnuhópnum er ætlað að gera tillögu um hvernig hús skal byggt og annað sem viðkemur byggingu þess. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi er starfsmaður hópsins.
 
Mynd: Horft yfir Skallagrímsvöll í átt að íþróttahúsinu í Borgarnesi.

Share: