Dílatangi Borgarnesi – Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar Borgarbyggðar vegna skipulags

september 12, 2022

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 8. september 2022 eftirfarandi tillögu að nýju deiliskipulagi, Dílatangi Borgarnesi. Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og bárust athugasemdir á auglýsingatíma.

Deiliskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun og munu taka gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Þeir sem óska nánari upplýsingum um tillögurnar og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skipulags- og byggingardeildar Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, Borgarnesi.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Borgarbyggðar á www.borgarbyggd.is

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.

Deiliskipulagsuppdráttur

Skýringaruppdráttur

Greinargerð


Share: