Borgarbyggð auglýsir eftir sviðsstjóra fjölskyldu- og fjármálasviðs

janúar 9, 2015
Við leitum að framsæknum leiðtoga í stöðu sviðsstjórafjölskyldu- og fjármálasviðs. Sviðsstjóri hefur yfirumsjón með fjármálum, stjórnsýslu, fræðslumálum, íþrótta- og tómstundamálum, félagsþjónustu og menningarmálum.
Verkefni og ábyrgðarsvið
Ábyrgð á rekstri skrifstofu og framkvæmd málaflokka sem heyra undir sviðið
Yfirumsjón með gerð fjárhags- og starfsáætlana fyrir sviðið og stofnanir þess
Yfirstjórn stofnana sem heyra undir sviðið
Vinnur að stefnumótun og mannauðsmálum fyrir sviðið og stofnanir þess
Eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða sem í gildi eru og heyra undir sviðið
Menntunar- og hæfnikröfur
Háskólamenntun á sviði stjórnunar og fjármála
Menntun á sviði fræðslumála er æskileg
Reynsla af stjórnun og mannauðsmálum
Reynsla af áætlanagerð og fjármálastjórn
Þekking á opinberri stjórnsýslu
Hæfni í mannlegum samskiptum
Skipulagshæfileikar og sjálfstæði í vinnubrögðum
Hæfni í framsetningu á efni í ræðu og riti
 
Upplýsingar veitir Kolfinna Jóhannesdóttir í síma 433 7100
Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar nk. Umsækjendur eru beðnir um skila inn umsóknum á netfangið kolfinna@borgarbyggd.is. Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
 
 
 

Share: