Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í skóla- og tómstundaakstur

maí 13, 2026
Featured image for “Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í skóla- og tómstundaakstur”

Borgarbyggð auglýsir nú eftir tilboðum í skóla- og tómstundaakstur fyrir grunnskólanemendur í sveitarfélaginu frá upphafi skólaárs haustið 2026.

Útboðinu er skipt í þrjú svæði og innan hvers svæðis eru nokkrar akstursleiðir. Heimilt er að bjóða í einstök svæði, en bjóðandi skal bjóða í allar akstursleiðir innan þess svæðis sem boðið er í.

Nánari upplýsingar, útboðsgögn og skil á tilboðum fara fram í gegnum útboðskerfi Fjársýslunnar, TendSign.is leiðbeiningar má finna hér

Leiðbeiningar um notkun útboðskerfisins má finna á heimasíðu Fjársýslunnar.


Share: