
Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir nú eftir umsóknum um styrki.
Markmið sjóðsins er að efla og styðja við menningarlíf í Borgarbyggð, með sérstakri áherslu á grasrót og frumkvæði í menningu.
Með umsókn skal fylgja greinargerð um verkefnið ásamt sundurliðaðri kostnaðaráætlun.
Styrkþegar úr fyrri úthlutunum eru minntir á að skila inn skýrslu um framgang og lok verkefna áður en sótt er um á ný. Skýrsluskil eru skilyrði fyrir frekari styrkveitingum.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur sjóðsins áður en umsókn er send inn.
Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt á vef Borgarbyggðar
Umsóknarfrestur er til 23. apríl 2026.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Kjartansdóttir
thorunn.kjartansdottir@borgarbyggd.is eða í síma 433-7100.