Eruð þið búin að Bach-a fyrir jólin?

nóvember 22, 2010
Fréttatilkynning
Tónlistarfélag Borgarfjarðar býður til dagskrár í tali og tónum í aðdraganda aðventu.
Um árabil hefur Tónlistarfélag Borgarfjarðar efnt til tónleika við upphaf aðventu í samvinnu við Reykholtskirkju og Borgarfjarðarprófastsdæmi. Dagskráin, sem ber yfirskriftina „Eruð þið búin að Bach-a fyrir jólin?“ verður með nokkuð óvenjulegu sniði að þessu sinni. Tómas Guðni Eggertsson orgelleikari leikur sálmforleiki eftir J.S. Bach á hið rómaða orgel Reykholtskirkju og Davíð Þór Jónsson píanóleikari spinnur á sinn einstaka hátt út frá orgeltónunum auk þess sem þeir Tómas leika saman á hljóðfærin. Sigurbjörg Þrastardóttir skáldkona og Egill Ólafsson leikari og söngvari flytja aðventu- og jólaljóð eftir yngri og eldri höfunda.
 
Dagskráin í Reykholtskirkju verður fimmtudaginn 25. nóvember og hefst klukkan 20:00. Aðgangseyrir er 1500 krónur, 1000 krónur fyrir eldri borgara. Meðlimir í Tónlistarfélagi Borgarfjarðar greiða ekki aðgangseyri. Menningarráð Vesturlands styrkir starf Tónlistarfélags Borgarfjarðar.
 

Share: