Borgfirskt landslag og málverk Tolla í Safnahúsi

apríl 24, 2013
Tolli og Bubbi í Safnahúsi
Þorlákur Morthens, betur þekktur sem Tolli, sýnir málverk og teikningar í Safnahúsi sumarið 2013 og verður sýning hans opnuð á sumardaginn fyrsta kl. 13.00. Þar segir Tolli stuttlega frá verkum sínum og Bubbi Morthens flytur nokkur lög. Tolli verður síðan viðstaddur á sýningunni til kl. 16.00.
Sýningin stendur 25. apríl til 5. ágúst 2013. Þess má geta að báðar fastasýningar Safnahúss verða opnar þennan dag, Börn í 100 ár og Ævintýri fuglanna. Opið verður til 17.00.
 
Tolli er fæddur 1953. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Hochschule der Künste í Vestur-Berlín og kom fyrst fram á samsýningu sjömenninga úr Myndlista- og handíðaskólanum í Norræna húsinu 1982. Verk hans njóta mikilla vinsælda og eru í eigu listasafna bæði hérlendis og erlendis.
Megin stefið í verkum Tolla er íslensk náttúra í kröftugu samspili ljóss og lita. Sýningin í Safnahúsi ber heitið Mýrar, móar, fjöll og verkin sem þar eru sýnd eru innblásin af töfrum borgfirskra sveita.
 
Sýningin stendur 25. apríl til 5. ágúst 2013. Þess má geta að báðar fastasýningar Safnahúss verða opnar þennan dag, Börn í 100 ár og Ævintýri fuglanna. Opið verður til 17.00.
 
Nánari upplýsingar:
Tolli: tolli@tolli.is
Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður Safnahúss: 898 9498 – gudrunj@borgarbyggd.is

Share: