Slökkt á ljósastaurum í þéttbýli

apríl 23, 2012
Slökkt verður á götulýsingu á vegum Borgarbyggðar í öllum þéttbýlisstöðum sveitarfélagsins þann 30. apríl næstkomandi að undanskilinni lýsingu á þjóðvegi 1 gegnum Borgarnes.
Þetta er fjórða sumarið með þessu fyrirkomulagi og gert til að halda niðri kostnaði sveitarfélagsins við götulýsingu. Gert er ráð fyrir að slökkt verði á ljósastaurunum í rúmlega 14 vikur og kveikt verði aftur þann 10. ágúst í sumar.
 
 

Share: