Námsráðgjafi við grunnskóla Borgarbyggðar

mars 24, 2010
Borgarbyggð hefur gert samning við námsráðgjafa fyrir grunnskóla Borgarbyggðar. Elín Kristjánsdóttir námsráðgjafi hefur tekið að sér að veita námsráðgjöf í grunnskólunum og mun hún hefja störf strax í þessari viku.
Á þessu skólaári verður lögð áhersla á námsráðgjöf til nemenda 10. bekkja og mun Elín fyrst og fremst veita upplýsingar og ráðgjöf varðandi innritun í framhaldsskóla. Forinnritun í framhaldsskólana stendur yfir dagana 12.- 16. apríl næstkomandi og endurskoðun á vali skóla fer fram dagana 7.-11. júní nk.
Elín verður til viðtals í grunnskólum Borgarbyggðar sem hér segir:
Í Grunnskólanum í Borgarnesi föstudaginn 26. mars og ef þörf krefur verður hún einnig til staðar þriðjudaginn 30. mars. Tímapantanir fara fram hjá ritara grunnskólans, Sigríði Helgu, í síma 437-1229.
Í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum miðvikudaginn 7. apríl. Tímapantanir fara fram hjá ritara grunnskólans, Jónu Ester, í síma 435-1172 á starfstíma skólans.
Í Varmalandsskóla fimmtudaginn 8. apríl. Tímapantanir fara fram hjá ritara grunnskólans, Kristínu, í síma 430-1505 frá kl. 8.00 – 12.00 á starfstíma skólans.
Boðið verður upp á viðtalstíma aftur upp úr miðjum maí.
Nemendur og foreldrar eru eindregið hvattir til að nýta sér þessa þjónustu. Nánari upplýsingar veitir Ásthildur Magnúsdóttir, fræðslustjóri í síma 433-7100 eða í tölvupósti (asthildur@borgarbyggd.is).
 
 

Share: