Minningarsteinn um fósturmissi

nextjs

Sunnudaginn 7. júní verður minningarsteinn um fósturmissi vígður með formlegum hætti í Borgarneskirkjugarði.
Við mætumst í Borgarneskirkju kl 18:00 í stuttri helgistund, þar sem kirkjukórinn leiðir sálmasöng og séra Heiðrún segir nokkur orð.
Við förum svo saman í Borgarneskirkjugarð, þar sem Sigursteinn Sigurðsson flytur tölu fyrir hönd sóknarnefndar Borgarneskirkju.
Verkið er eftir listamanninn Liston frá Grundafirði og ætlar hann að heiðra okkur með nærveru sinni og segja okkur frá tilurð verksins og innblæstri í ferlinu. Steinninn verður svo vígður formlega og Kirkjukórinn syngur falleg löð
Þetta verður falleg stund og græðandi, og víst að þessi minningarsteinn er mikilvæg viðbót við kirkjugarðinn okkar Borgnesinga.
Sjáumst á sunnudaginn klukkan 18:00