Í kirkjunni komum við saman á allra heilagramessu, leyfum huganum að dvelja hjá öllum þeim sem við höfðum í lífi okkar og elskum, en eru nú fallin frá. Við komum saman til þess að þakka fyrir allar góðu minningarnar, biðja fyrir og heiðra minningu ástvina okkar.
