17. júní í Borgarbyggð

17. júní í Borgarbyggð

Borgarbyggð býður íbúum og gestum upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Viðburði er að finna víðs vegar um sveitarfélagið og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

08:00 – Fánar dregnir að húni
Við hvetjum alla íbúa til að draga íslenska fánann að húni í tilefni dagsins.

10:00–11:00 – Íþróttahátíð á Skallagrímsvelli og í nýja fjölnota íþróttahúsinu
17. júní hlaup, leikir og Sólon kemur í heimsókn.

11:00–12:00 – Safnahús Borgarfjarðar
Skoppa og Skrítla skemmta gestum, föndur og samvera.

12:15–13:30 – Andlitsmálning í félagsmiðstöðinni Óðal
Andlitsmálning fyrir börn á öllum aldri og upphitun fyrir skrúðgöngu.

13:30Skrúðganga
Gengið frá Borgarneskirkju í Skallagrímsgarð. Óvænt furðuvera tekur þátt!

13:45Hátíðardagskrá í Skallagrímsgarði
Kynnir verður enginn annar en Lalli töframaður, Blaðrarinn gefur gestum uppblásin blöðrudýr, ávarp fjallkonu, söngatriði, listamanneskja Borgarbyggðar, hátíðarræða, sölutjöld, nammiregn í boði Slökkviliðs Borgarbyggðar, hoppukastalar og teygjuhopp.

16:00Hátíðarmessa í Brákarhlíð
Séra Heiðrún Helga býður öllum í hátíðarmessu.

📍 Hvanneyri
Fánaganga í skjólabeltinu. Farið af stað frá Sverrisvelli kl. 11:30. Grillað verður á staðnum og farið í leiki.

📍 Lindartunga
Kvenfélagið Björk og Ungmennafélagið Eldborg standa fyrir hefðbundnum 17. júní hátíðarhöldum.

📍 Reykholt
Messa í Reykholtskirkju kl. 11:00. Ungmennafélag Reykdæla stendur síðan fyrir hátíðarhöldum í Logalandi frá kl. 13:00.

Ath tímasetningar og staðsetningar gætu breyst.