Um þessar mundir er verið að vinna að endurbótum á þrekaðstöðunni í íþróttahúsinu á Varmalandi. Verið er að brjóta niður veggi og fleira til þess að rýmka um í þreksalnum, en auk þess verður sturtuaðstaðan lagfærð, settir upp speglar, rýmið málað og fl. Það er Ásgeir Rafnsson umsjónarmaður fasteigna sem annast verkið, ásamt Guðmundi Finnssyni, umsjónarmanni íþróttahússins á Varmalandi. …
Gróðursetningar í Einkunnum
Frá framkvæmdasviði: Inn á heimasíðuna undir umhverfismál hefur verið sett skrá með yfirliti yfir gróðursetningar í Einkunnum frá 1954-1989. Trén voru aðallega gróðursett af Skógræktarfélaginu Ösp, en svo nefndist Borgarnesdeild Skógræktarfélags Borgarfjarðar. Ekki eru til skrár um umfang gróðursetningar eftir 1989 en auðsjáanlegt þegar gengið er um svæðið að eitthvað hefur verið gert. Þeir sem luma á upplýsingum um þær …
Leiksýningar í Lyngbrekku í mars
Leikdeild UMF Skallagríms hefur hafið æfingar á leikritinu Sex í sveit eftir Marc Camoletti, sem þýtt er af Gísla Rúnari Jónssyni. Æfingar fara fram í Lyngbrekku og er frumsýning áætluð um miðjan mars. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Leikarar eru 6 talsins, en auk þeirra koma fjölmargir aðrir að uppfærslu sýningarinnar. Meðfylgjandi mynd var tekin á fyrsta leiklestri á sviði í …
Verkþætti SG við Ugluklett lokið
Meðfylgjandi myndir voru teknar af því tilefni að SG-hús voru að ljúka sínum verkþætti við byggingu nýs leikskóla við Ugluklett í Borgarnesi. Hér afhenda fulltrúar fyrirtækisins lyklavöldin til Ingunnar Alexandersdóttur leikskólastjóra, í bakgrunni sést í annað starfsfólk leikskólans við Skallagrímsgötu. Ljósmynd: Jökull Helgason
Sumarlokanir á leikskólum
Fræðslunefnd Borgarbyggðar hefur samþykkt að sumarlokun leikskóla sveitarfélagsins verði með eftirfarandi hætti sumarið 2007: Leikskólinn í Skallagrímshúsi ogleikskólinn Klettaborg í Borgarnesi og Andabær á Hvanneyri verði lokaðir frá og með 13. júlí til og með 10. ágúst. Leikskólinn Hnoðraból í Reykholtsdal verði lokaður frá og með 2. júlí til og með 3. ágúst. Leikskólinn á Varmalandi verði lokaður …
Tónlistarskólinn: tónleikar í Borgarneskirkju
Í þessari viku verða haldnir tvennir tónleikar á vegum Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Í dag, mánudaginn 5. febrúar, kl. 20:00 verða tónleikar þar sem nemendur í framhaldsnámi koma fram og föstudaginn 9. febrúar kl. 18:00 verða tónleikar með nemendum í miðnámi. Tónleikarnir verða í bæði skiptin haldnir í Borgarneskirkju.
Tekið til hendinni
Krakkar í níundu bekkjum Grunnskólans í Borgarnesi eru að safna fé til að geta farið og heimsótt danska jafnaldra sína í haust. í gær komu þau í ráðhúsið vel búin til að geta farið í tiltekt á götum bæjarins í nokkra tíma til fjáröflunar. Um leið og þau hófu störfin versnaði veðrið til muna, en þau voru flest vel búin …
Verkefna- og aðgerðaáætlun
Verkefna- og aðgerðalisti meirihluta sveitarstjórnar fyrir árið 2007hefur verið gerður aðgengilegur hér á heimsíðunni undir stjórnsýsla/stefnur og markmið. Þar er kveðið á um stefnu í öllum helstu málaflokkum: Fræðslumálum, íþrótta- og æskulýðsmálum, menningarmálum, félagsmálum, skipulagsmálum, atvinnu- og markaðsmálum, umhverfismálum, samgöngu- og umferðaröryggismálum, brunavörnum og slökkviliðsmálum og almennrar stjórnsýslu.
Skipulagsmál kynnt
Um 120 manns mættu á kynningarfund um skipulagsmál í Borgarbyggð á Hótel Borgarnesi s.l. mánudag. Eftirtaldir fluttu framsöguerindi: Sigurður Páll Harðarson, forstöðumaður framkvæmdasviðs, Torfi Jóhannesson formaður skipulagsnefndar, Ríkharð Briem arkítekt og Páll Brynjarsson sveitarstjóri. Fjallað var aðallega um eftirfarandi: nýja byggð vestan Borgarvogar við Borgarnes nýtt byggingasvæði fyrir íbúðahverfi í Bjargslandi skipulag á lóðunum nr. 55-59 við Borgarbraut staðsetningu …
Fólkvangurinn Einkunnir – deiliskipulag
Þann 8. janúar síðastliðinn var undirritaður samningur við Landlínur ehf. um gerð deiliskipulags fyrir fólkvanginn í Einkunnum rétt við Borgarnes. Markar það upphaf framkvæmda sem miða munu að því að gera svæðið aðgengilegt og enn fjölbreytilegra sem útivistarsvæði. Fólkvangurinn í Einkunnum er ein af perlum Borgarbyggðar. Hann var stofnaður vorið 2006. Frá Einkunnunum sjálfum, klettunum sem rísa sem kennileiti á …