Íþróttamiðstöðvar – opið um páska

Kjörið er að bregða sér í busl – bað og bringusund í sundlaugum sveitarfélagsins um páskana.   Hér á eftir fara upplýsingar um opnunartíma íþróttamiðstöðvanna í Borgarnesi, á Kleppjárnsreykjum og á Varmalandi, en á þessum stöðum verður opið alla páskana: Íþróttamiðstöðin Borgarnesi: Fimmtudaginn 5. apríl ( Skírdag ) frá kl. 09.00 – 18.00 Föstudaginn 6. apríl ( Föstud. langi) frá …

Nýjar skipulagstillögur settar á vefinn

Auglýst hefur verið breyting á aðalskipulagi Borgarbyggðar 1997-2017 og nýtt deiliskipulag af svæði við Hrafnaklett í Borgarnesi. Báðar þessar tillögur liggja frammi til skoðunar á skrifstofum Borgarbyggðar til 8. maí og frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 22. maí 2007. Tillögurnar hafa einnig verið settar hér á heimasíðuna undir starfsemi/skipulagsmál. Á sama stað á síðunni er að finna …

Bjargsland II – breyting á deiliskipulagi

Auglýst er tillaga að deiliskipulagsbreytingu í Bjargslandi 2 svæði 1, Borgarnesi.   Í samræmi við 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst eftir athugasemdum við ofangreinda deiliskipulagsbreytingu sem felst í því að lóðum er fækkað, þær stækkaðar og notkun breytt. Deiliskipulagsbreytingin verður til sýnis í ráðhúsi Borgarbyggðar frá 28.03.2007 til 25.04.2007 en einnig má sjá …

Staða skipulagsmála

Á vefnum er að finna upplýsingar um stöðu skipulagsmála og er það skjal uppfært reglulega.   Sjá má nýjustu útgáfuna með því að smella hér.   Ennfremur er að finna pdf skjöl af ýmsum skiplagsuppdráttum hér á síðunni undir starfsemi/skipulagsmál  

Verðlækkun í mötuneytum

Byggðarráð samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að lækka gjaldskrár mötuneyta í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins um 5% frá og með 1. mars sl. Þetta er gert með tilliti til lækkunar virðisaukaskatts á matvæli. Sjá má nýja gjaldskrá fyrir leikskóla sveitarfélagsins með því að smella hér.  

„Wake me up“ í Óðali

27. mars 2007 09:57 Árshátíð Nemendafélags G.B. Árshátíð Nemendafélags Grunnskóla Borgarness er nú komin á fjalirnar á stóra sviðinu í Óðali. Að þessu sinni er það rokksöngleikurinn „Wake me up“ sem Hallgrímur Helgason þýddi og samdi handrit við. Tónlistina útsetti Jón Ólafsson. Hvetjum alla til að koma og eiga góða stund með unglingum í Óðali en aðeins sex sýningar á …

Velheppnuð afmælishátíð

Síðastliðinn fimmtudag, 22. mars, voru 140 ár liðin frá því að Borgarnes öðlaðist konunglega löggildingu sem verslunarstaður. Í því tilefni buðu Borgarbyggð og verslunarrekendur í Borgarnesi sameiginlega til afmælisfagnaðar í Landnámssetrinu. Margt var til skemmtunar, bæði í tali og tónum. Hátíðarhöldin lukkuðust mjög vel og lagði fjölmenni leið sína í Landnámssetrið þrátt fyrir aftaka veður. Ánægjulegt var hversu mikla og …

Lokun Skúlagötu tímabundið

  Mánudaginn 26. mars næstkomandi verður Skúlagötu lokað tímabundið vegna vinnu veitufyrirtækja við lagnir og strengi í götunni. Lokunin verður ca. frá kl. 10:00 og fram eftir degi. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin veldur.    

140 ára verslunarafmæli Borgarness

Þann 22. mars 2007 eru liðin 140 ár síðan Borgarnes fékk konunglegt leyfi sem verslunarstaður. Óhætt er að segja að löggildingin hafi markað mikil tímamót í sögu Borgarness og þar með sveitanna í kring. Í tilefni af afmælinu, sem er í raun jafnframt afmæli Borgarness, verður blásið til afmælisveislu í Landnámssetrinu við Búðarklett í Borgarnesi fimmtudaginn 22. mars, en á …

Borgarnes í brennidepli á RÚV á afmælisdaginn

Eins og flestum ætti að vera orðið kunnugt um þá fagnar Borgarnes 140 ára verslunarafmæli á morgun, 22. mars. Dagurinn er í raun jafnframt afmælisdagur byggðar í Borgarnesi þar sem það var í kjölfar þess að staðurinn fékk löggildingu sem verslunarstaður að fólk settist hér að. Í tilefni af þessum tímamótum verður Borgarnes í sviðsljósinu hjá RÚV í dag. Klukkan …