Íbúða- og iðnaðarlóðir lausar til umsóknar

Borgarbyggð auglýsir íbúða- og iðnaðarlóðir lausar til umsóknar. Um er að ræða lóðir í Borgarnesi á Hvanneyri og Bæjarsveit. Eftirtaldar lóðir eru nú til úthlutunnar: Á Hvanneyri er um að ræða fjórar einbýlishúsalóðir við Lóuflöt nr. 1-4 og þrjár fjögurra íbúða parhúsalóðir 8-14, 16-22 og 24-30 við Hrafnaflöt. Við Ásbrún í Bæjarsveit eru lausar 4 lóðir. Í Borgarnesi eru lausar …

Ný félagsmiðstöð fyrir unglinga á Kleppjárnsreykjum

Félagsmiðstöð fyrir unglinga í 8. – 10. bekk Grunnskóla Borgarfjarðar var formlega opnuð á Kleppjárnsreykjum miðvikudaginn 12. des. s.l. í Blómaskálanum Kleppjárnsreykjum. Félagsmiðstöðin verður opin á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 15.30 – 19.00. til að byrja með. Á nýju ári verður einnig prófað að hafa opið eitt kvöld í viku á Hvanneyri ef þátttaka verður næg. Innra starf í …

Tvær lausar stöður við leikskólann Ugluklett í Borgarnesi

Hér fyrir neðan eru auglýstar tvær lausar stöður við leikskólann Ugluklett í Borgarnesi. Deildarstjóri óskast til starfa við leikskólann Ugluklett í Borgarnesi frá og með 1. febrúar 2008. Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur, virðing og gleði.   Menntunar- hæfniskröfur-Leikskólakennaramenntun. -Reynsla af uppeldis- og/eða kennslustörfum með börnum. -Færni í mannlegum samskiptum. -Skipulagshæfni, nákvæmni, áreiðanleiki og frumkvæði í starfi.Fáist ekki leikskólakennarar til starfa …

Leikskólar fá gjafir frá Omnis

Fyrirtækið Omnis, áður Tölvuþjónustuþjónusta Vesturlands, hefur fært öll leikskólum í Borgarbyggð að gjöf glæsilega prentara fyrir ljósmyndaprentun. Leikskólastjórar ásamt sveitarstjóra veittu þeim viðtöku s.l. mánudag. Einnig voru afhentir prentarar til leikskóla á öðrum starfssvæðum fyrirtækisins, alls til ríflega 20 stofnana. Þetta er gert í tilefni þess að fyrirtækið er að færa út kvíarnar og er nú með meginstarfsemi í Borgarnesi, …

Fréttabréfið komið út

Fréttabréf Borgarbyggðar er komið út og hefur verið borið í hvert hús í sveitarfélaginu. Upplag þess er 1.500 eintök og ritstjóri er Björg Gunnarsdóttir umhverfis- og kynningarfulltrúi. Meðal efnis í blaðinu er viðtal við sveitarstjórnarmanninn Sigríði Björk Jónsdóttur, pistill frá Írisi Grönfeldt og grein um útivistarsvæðið Einkunnir.   Sjá má blaðið sem pdf skjal með því að smella hér.  

Jólafjör í íþróttamiðstöðinni

Leiðbeinendur í þolfimisalnum í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi bjóða upp á svokallað ,,Jólafjör“ þar næstkomandi laugardag, þann 15. desember kl. 10.00-12.00. Tíminn byrjar kl: 10.00 í þolfimisalnum og endar kl 12.00 inn í stóra sal. Það verður hjólað, boxað og fleira. Með þessu fylgir eindregin áskorun frá skipuleggjendunum um að allir mæti í einhverju rauðu í stíl við tímasetninguna.

Jólatónleikar Tónlistarskólans

Nú stendur yfir hefðbundin röð tónleika hjá Tónlistarskóla Borgarfjarðar, þar sem nemendur skólans úr öllu héraðinu koma fram og sýna hvað þeir hafa numið á þeirri önn sem er að ljúka. Fyrstu tónleikarnir voru í gær kl. 18 í sal Tónlistarskólans við Borgarbraut í Borgarnesi, næstu eru kl. 18 í dag og svo koll af kolli alla virka daga þessarar …

Félagsmiðstöð opnuð á Kleppjárnsreykjum

Félagsmiðstöð fyrir unglinga í 8. – 10. bekk verður formlega opnuð á Kleppjárnsreykjum miðvikudaginn 12. des. kl. 16.00 í Blómaskálanum Kleppjárnsreykjum.     Félagsmiðstöðin verður opin á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 15.30 – 19.00. Á nýju ári verður einnig prófað að hafa opið eitt kvöld í viku á Hvanneyri ef þátttaka verður næg. Starfsmaður félagsmiðstöðvarinnar er Arnoddur Magnús Danks. …

Jólaútvarp Óðals hefst í dag – fm 101,3

Jólaútvarp Óðals fer í loftið í dag kl. 10 og að þessu sinni verður útsending í fimm daga, mánudag frá kl. 10.00 til föstudags til kl. 23.00. Í ár verða þættir frá Borgarnesi, Varmalandi, Kleppjárnsreykjum, Ungmennahúsinu Mími og Menntaskóla Borgarfjarðar. Einnig er útvarpað beint á netinu á nýju heimasíðu Óðals www.odal.borgarbyggd.is og því geta allir hlustað á útvarpið. Starfrækt verður …

Samningur um Safnahús

Forsvarsmenn Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og Skorradalshrepps undirrituðu s.l. föstudag samning sín á milli um safnamál. Þar er kveðið skýrt á um vörsluhlutverk Skjalasafns Borgarfjarðar gagnvart Hvalfjarðarsveit auk aðgengis íbúa Skorradalshrepps að bóksafni, skjalasafni, náttúrugripasafni og byggðasafni. Þetta er gert í kjölfar þess að byggðasamlag sem fyrir hendi var um þessi söfn var slitið um síðustu áramót. Samkvæmt þessu fellur annað sértækt …