Föstudaginn 4. apríl síðastliðinn, var tekin fyrsta skóflustungan að nýjum leikskóla Andabæjar við Arnarflöt 1 á Hvanneyri. Það voru elstu nemendur leikskólans sem tóku fyrstu skóflustunguna, en því næst tók starfsmaður Jörva efh. á Hvanneyri fyrstu vélskóflustunguna, með einn af gröfuvélum Jörva. Til gamans má geta þess að Valdís Magnúsdóttir leikskólastjóri reyndi á tækjahæfileika sína í framhaldinu með því að …
Rannsókarverkefni um norræna goðafræði í Snorrastofu
Snorrastofa í Reykholti er að hrinda af stað stóru rannsóknarverkefni um norræna goðafræði. Verkefnið er gríðarlega viðamikið og munu margir helstu fræðimenn í greininni, bæði íslenskir og erlendir, koma að vinnslu þess. Verkefnið varð að veruleika fyrir áeggjan Jónasar Kristjánssonar, fyrrverandi forstöðumanns Árnastofnunar og fulltrúa í stjórn Snorrastofu, og strax á fyrstu stigum var ákveðið að koma verkefninu á fót …
Gestir í heimsókn
Það var boðið upp á hörkuleik tveggja old boy‘s liða á sunnudaginn var í Íþróttamiðstöðinni Borgarnesi. Þarna áttust við burtflognir Borgfirðingar sem snéru heim aftur um stund til að etja kappi við staðbundna borgfirðinga sem hafa æft körfubolta vel í vetur. Þeir burtfluttu tóku upp á að æfa saman sér til gamans í Reykjavík fyrir nokkrum árum aðallega til að …
Frá Tómstundaskólanum/Selinu á Kleppjárnsreykjum í Borgarbyggð
Ákveðið hefur verið að bjóða upp á íþróttaskóla fyrir 1. og 2. bekk einu sinni í viku á Hvanneyri og Kleppjárnsreykjum ef næg þátttaka fæst. Tímarnir verða á miðvikudögum frá kl. 15:00-16:00 og hefjast 9. apríl á Hvanneyri og á mánudögum frá kl. 15:15-16:00 og hefjast 7. apríl á Kleppjárnsreykjum. Leiðbeinandi íþróttaskólans á Kleppjárnsreykjum verður Arnar Guðjónsson. Leiðbeinandi íþróttaskólans á …
Hátíðin ,,Eftir Mýraelda“
Búnaðarfélag Mýramanna stóð fyrir hátíð í Lyngbrekku sem nefndist ,,Eftir Mýraelda” frá fimmtudagskvöldinu 3. apríl til laugardagsins 5. apríl til að minnast þess að tvö ár eru nú liðin frá Mýraeldunum miklu. Búnaðarfélag Mýramanna stefnir að því að halda slíka hátíð annað hvert ár héðan í frá. Hátíðin hófst með því að landbúnaðarráðherra og formaður bændasamtakanna fluttu framsöguerindi. Um 20 …
Undirskrift menningarsamninga
Síðastliðinn miðvikudag voru undirritaðir samningar á milli Borgarbyggðar og tveggja stofnana í Borgarfirði sem báðar hafa áunnið sér sess sem virtar menningarstofnanir á sínu sviði. Þetta eru Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri og Landnámssetur í Borgarnesi. Um er að ræða langtímasamninga um rekstrarframlög til þriggja ára og í þeim er kveðið á um árlegt framlag sveitarfélagsins á …
Zsuzsanna hlýtur heiðursviðurkenningu
Í gær var ungverska píanóleikaranum Zsuzsönnu Budai veitt heiðursviðurkenning Menningarsjóðs Borgarbyggðar fyrir árið 2008. Það var formaður Menningarsjóðs, Jónína Erna Arnardóttir, sem afhenti Zsuzsönnu viðurkenninguna, sem var í formi heiðursskjals og veglegrar peningaupphæðar. Afhendingin fór fram í sal Tónlistarskóla Borgarfjarðar við Borgarbraut í Borgarnesi. Zsuzsanna Budai hefur auðgað borgfirskt tónlistarlíf með hæfileikum sínum, þekkingu og dugnaði í allmörg ár. Hún …
„ Dráttarvélin tekin út úr fjósinu og stefnan sett á Grindavík“
Leikmenn Skallagríms eru nú lagðir af stað til Grindavíkur á Oddaleikinn þar sem verður háður í kvöld. Þessi skemmtilega mynd var tekin upp á golfvelli af „Skallagrímsdráttarvélinni“ hans Jóns Finnssonar þegar leikmenn Skallagríms mátuðu gripinn og slógu úr nokkrum fötum í leiðinni. Þjálfarinn Ken Webb er að sjálfsögðu brosandi við stýrið eins í öðrum leikjum liðsins. Búist er við …
Menningarstefna Borgarbyggðar gefin út
Meginatriði menningarstefnu Borgarbyggðar hafa nú verið gefin út í bæklingi, sem liggur frammi á sveitstjórnarskrifstofunum. Hann hefur einnig verið sendur til allra sveitarstjórnarmanna og helstu stofnana sveitarfélagsins og verður sendur til Menntaskóla Borgarfjarðar og háskólanna í héraði. Í bæklingnum eru 17 grundvallaratriði stefnunnar tíunduð auk þess sem farið er í stuttu máli yfir vinnuferlið við mótun hennar. Sú vinna hófst …
Körfuknattleikslið Skallagríms sigraði lið Grindarvíkur
Skallagrímsmenn voru frábærir í Fjósinu Borgarnesi s.l. sunnudagskvöld þegar þeir sigruðu lið Grindavíkur í æsispennandi leik, 96-91. Zekovic, Pétur Már og Flake fóru mikinn í sóknarleik okkar manna og Axel Kára hélt stórskyttu Grindvíkinga Páli Axeli í 13 stigum í leiknum sem er varnarleikur af bestu gerð á þennan frábæra landsliðsmann. Þar með hafa Borgnesingar náð að jafna einvígið við …