Dagur íslenskrar tungu er haldinn 16. nóvember ár hvert. Í tilefni dagsins verður þann 14. nóvember næstkomandi opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar ljóðasýning nemenda fimmtu bekkja í grunnskólunum úr nágrenninu. Þetta er í fjórða sinn sem Safnahús fer þess á leit við kennara fimmtu bekkja að þeir leggi nemendum sínum fyrir það verkefni að yrkja ljóð og jafnvel myndskreyta það. Afraksturinn …
Norræni skjaladagurinn
Í tilefni norræna skjaladagsins sem haldinn er 8. nóvember hefur verið opnaður vefurinn www.skjaladagur.is . Tilgangur norræna skjaladagsins er að kynna starfsemi skjalasafnanna í landinu og leggja jafnframt áherslu á sameiginlega þætti í sögu Norðurlandanna. Að þessu sinni er þemað „gleymdir atburðir“. Hugsunin er m.a. sú að rifja upp atburði í sögu þjóðarinnar sem ekki eru í hávegum hafðir þessa …
Nýi Kaupþing Banki kaupir stofnfé Sparisjóðs Mýrasýslu
Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í dag, var samþykkt að taka tilboði Nýja Kaupþings Banka í stofnfé sveitarfélagsins í Sparisjóði Mýrasýslu. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki stjórnar Nýja Kaupþings Banka, eftirlitsstofnana og því að samningar náist við lánveitendur sparisjóðsins. Salan er liður í því að tryggja fjárhagslegan grundvöll sjóðsins og hagsmuni viðskiptavina hans.
Íbúafundir vegna kynningar á aðalskipulagi Borgarbyggðar
Ráðgjafafyrirtækið Landlínur hefur að undanförnu unnið að gerð nýs aðalskipulags fyrir Borgarbyggð. Vinnu við gerð aðalskipulagsins hefur miðað ágætlega og er áætlað að auglýsingaferli geti hafist í byrjun árs 2009. Það er vilji sveitarstjórnar að halda opna íbúafundi þar sem drög að tillögu sveitarfélagsins verða kynnt íbúum. Haldnir verða eftirfarandi 4 íbúafundir: – í Þinghamri að Varmalandi …
Auglýst eftir týndum ketti
Kötturinn Ugla hefur verið týnd í einhverja daga í Borgarnesi. Þeir sem hafa orðið hans varir eru vinsamlegst beðnir að hafa samband við eigandann. Sjá hér auglýsingu með upplýsingum um köttinn og símanúmerum sem hægt er að hringja í.
Upplýsingaskilti að Borg á Mýrum
Skilti ætlað ferðamönnum sem heimsækja Borg á Mýrum var orðið svo máð sumarið 2007 að ekki var hægt að lesa á það lengur. Í dag, fimmtudaginn 6. nóvember, hefur nýtt skilti verið sett upp og er það eins og það fyrra.
Hunda- og kattahreinsun í Borgarbyggð
Lögbundin hunda- og kattahreinsun verður í Borgarbyggð á eftirtöldum stöðum. Borgarnesi mánudaginn 10. nóvember í slökkvistöðinni við Sólbakka. Fyrir hunda kl. 17:00 -19:00. Fyrir ketti kl. 19:15 – 20:00. Bifröst þriðjudaginn 11. nóvember í kyndistöðinni kl. 16:00 – 18:00. Hvanneyri mánudaginn 17. nóvember í áhaldahúsinu kl. 16:00 – 18:00. Reykholti þriðjudaginn 18. nóvember í slökkvistöðinni kl. 16:00 – 18:00. –Hér …
Æskulýðsballið 2008
Hljómsveitin Skítarmórall ásamt leynigesti skemmtir á æskulýðsballi 8. -10. bekkinga í Borgarbyggð í sal Menntaskóla Borgarfjarðar fimmtudaginn 6. nóvember. Dagskráin hefst kl. 20:00. Sjá hér auglýsingu um æskulýðsballið.
Slökkviliðið í heimsókn á leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi
Fimmtudaginn 30. október 2008 kom Haukur Valsson frá slökkviliði Borgarbyggðar í heimsókn í leikskólann Ugluklett, til að ræða við elstu börnin um eldvarnir og öryggismál. Hann fór yfir mikilvæg öryggisatriði sem gott er að hafa í huga bæði í leikskólanum og á heimilunum. Haukur sýndi börnunum mynd með Ripp, Rapp og Rupp þar sem þeir gera rýmingaráætlun og hvatti hann …
Köttur í óskilum 2008-11-04
Gæludýraeftirlitsmaður Borgarbyggðar sótti í gær kött á Bifröst eftir ábendingar frá íbúa á Bifröst sem hefur fengið þennan kött ítrekað í heimsókn undanfarið illa til reika. Kötturinn er hvítur högni með fáeina svarta bletti. Hann er með ól en ekki merktur. Kötturinn er ekki skráður hjá Borgarbyggð og því ekki hægt að sjá hver eigandinn getur verið. Ef einhver kannast …